148. löggjafarþing — 50. fundur,  16. apr. 2018.

Lyklafellslína.

[15:46]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að ræða við hæstv. ráðherra um orkumál og flutninga, þar sem flutningar eru víða í miklum ólestri.

Nýverið sáum við, og reyndar var það í fréttum 26. mars sl., að framkvæmdaleyfi fyrir svokallaða Lyklafellslínu var fellt úr gildi. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur sagt það vera áfall og ljóst er að þetta hefur töluverð áhrif á sveitarfélagið, ekki síst þar sem búið var að leggja í miklar fjárfestingar á nýju svæði, þ.e. í Skarðshlíðarhverfinu, þar sem gert er ráð fyrir 520 íbúðum, og byrjuð uppbygging, m.a. á skólum og annarri slíkri þjónustu.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún sé hlynnt því að breyta þurfi lögum þannig að ekki sé hægt að kæra þegar svo langt er komið í framkvæmdir eða framkvæmdaferli við það að hefjast.

Í öðru lagi spyr ég hvort ráðherra telji að sveitarfélög, í þessu tilfelli Hafnarfjarðarbær, hefðu þurft að fara aðeins varlegar í framkvæmdaáætlanir sínar í ljósi þess að enn var hægt að kæra þetta ferli.

Í þriðja lagi spyr ég hvort hæstv. ráðherra hafi fundað með Landsneti og viðkomandi bæjarstjórnum varðandi þetta verkefni.