148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stjórnarfrumvörp of seint fram komin -- beiðni um skýrslu.

[16:27]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti stóð í þeirri meiningu að þegar hefði verið leitað afbrigða fyrir því að þessi mál mættu koma fram. Honum var ekki kunnugt um að svo háttaði til í neinu tilviki að ekki hefði enn verið leitað afbrigða vegna þessara mála en sjálfsagt mál er að kanna það. Gef ég þá á meðan hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni, 6. þm. Suðvest., orðið.