148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stjórnarfrumvörp of seint fram komin -- beiðni um skýrslu.

[16:28]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Nú er búið að liggja fyrir í talsverðan tíma að það yrði beðið um skýrslu frá hæstv. utanríkisráðherra þar sem fyrsti flutningsmaður er Rósa Björk Brynjólfsdóttir og við fleiri erum á málinu. Mér finnst alveg ótrúlegt að hæstv. ráðherra geti ekki haft aðeins meiri fyrirvara á því að gera athugasemdir og ræða þetta ef hann hefur einhverjar athugasemdir við þetta í staðinn fyrir að grípa til þessara ráða nú til að stoppa þetta í einhverjum panikviðbrögðum. Gagnvart mér blasir við að ráðherra vill ekki taka við skýrslubeiðninni. Ráðherra skal bara taka við skýrslubeiðninni sem þingið beinir til hans.