148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stjórnarfrumvörp of seint fram komin -- beiðni um skýrslu.

[16:29]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Eins og forseti hefur þegar upplýst þá verður gerð grein fyrir þessu máli. Forseti heitir því að gera skýrt og skilmerkilega grein fyrir málinu þegar það kemur til atkvæða væntanlega á miðvikudaginn kemur og stendur ekkert annað til, eins og áður sagði, en að vilji þingsins verði leiddur í ljós í þessum efnum.