skipulag haf- og strandsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það sem ég vil leggja áherslu á er að með þessu frumvarpi, ef þetta fer svona óbreytt inn, gefst tækifæri til að valdefla sveitarfélögin í þessum efnum og efla þátttökulýðræði. Mér finnst að þetta gæti orðið þróunarverkefni í að virkja frumkvæði heimamanna og færa þeim verkefnið. Þó að ekki sé verið að færa forræðið frá sveitarfélögunum, af því að þau hafa það ekki, ætti kannski heldur að nýta þetta tækifæri til þess að veita þeim það. Það er spurning um það.