skipulag haf- og strandsvæða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, nýtingaráætlanir sveitarfélaga sem fyrir hendi eru eiga að geta nýst inn í þetta. Það er um að gera að nýta þær eins og hægt er. Hvað varðar þau svæði sem koma á eftir þessum tveimur — það er í raun um að ræða bráðabirgðaákvæði sem heimila að ráðist verði í gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði og Vestfirði. Önnur svæði sem koma í framhaldinu, það á að kveða á um þau í stefnunni sem unnin verður sem hluti af landsskipulagsstefnu. Þar verður forgangsraðað hvaða svæði verða næst í röðinni. Ég á von á því að við tökum upp vinnu við landsskipulagsstefnu fljótlega með Skipulagsstofnun. Þá er þetta sjálfsagt eitt af því sem við skoðum, hvaða vinna fer í gang varðandi akkúrat þetta.
Ég get ekki svarað því nákvæmlega hvenær utanverður Eyjafjörður yrði á dagskrá eins og staðan er núna.