skipulag haf- og strandsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið, en langar að spyrja í framhaldinu varðandi skil eða skörun haf- og strandveiðiskipulags og skipulags hafnarsvæða, hvort það sé ætlunin að skipulag á hafnarsvæðum skarist. Nú eru hafnarsvæðin mjög vel skilgreind í hafnareglugerðum sveitarfélaga. Hefði ekki verið til athugunar að skipulag á hafnarsvæðum félli áfram undir sveitarfélögin?
Hins vegar langaði mig að spyrja út í aðkomu vatnasvæðanefnda, sem eru nefndar sérstaklega sem ráðgefandi aðilar. Ég velti því fyrir mér í hvaða tilgangi það sé og eins hvort þær nefndir séu í raun virkar á öllum svæðum.