148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

skipulag haf- og strandsvæða.

425. mál
[16:59]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég bendi hv. þingmanni á 2. mgr. 10. gr. hvað þetta varðar, en þar segir:

„Strandsvæðisskipulag skal byggt á og vera í samræmi við stefnu um skipulag haf- og strandsvæða. … Eftir atvikum skal einnig gæta samræmis við annað strandsvæðisskipulag samkvæmt lögunum. Við gerð strandsvæðisskipulags skal jafnframt gæta samræmis við skipulagsáætlanir samkvæmt skipulagslögum. Einnig ber að taka mið af stjórnvaldsfyrirmælum, öðrum lögum og lögbundnum ákvörðunum um nýtingu og vernd haf- og strandsvæða þar sem tiltekin starfsemi er til dæmis takmörkuð eða bönnuð.“

Í þeim tilfellum þegar einhver starfsemi er til staðar þegar kemur að gerð strandsvæðisskipulagsins ber að taka tillit til og skoða fyrri ákvarðanir sem teknar hafa verið.