stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir andsvarið. Já, það er rétt skilið. Einkaaðili þarf satt best að segja að óska eftir því í gegnum sveitarfélag ef hann vill að tjörnin hans eða hvaða fyrirbæri það er komi þarna inn á áætlun varðandi uppbyggingu innviða. En ég vil benda hv. þingmanni á það að eftir að lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða var breytt fyrir ári eða tveimur árum er þar líka möguleg aðkoma einkaaðila til að sækja um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum.