148. löggjafarþing — 51. fundur, 16. apr. 2018.
stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.
479. mál
Hæstv. forseti. Nei, í rauninni er hann ekki að fyrirgera rétti sínum vegna þess að hann getur sótt um til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og svo gæti hann síðar komið í gegnum sveitarfélagið. Sveitarfélögin senda inn tillögur til landsáætlunarinnar um þau svæði sem þau leggja til að verði tekin fyrir. Í einhverjum tilfellum getur verið um að ræða svæði í einkaeigu þar. Viðkomandi fyrirgerir ekki rétti sínum, hann kemst þá kannski síðar að og eitthvað slíkt.