148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.

479. mál
[18:02]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir að koma með þessa tillögu hér inn í þingið. Ég sé í fylgiskjali að skýrsla verkefnisstjórnar, sem ég geri ráð fyrir að tillagan byggist að miklu leyti á, er dagsett í mars í ár, 2018. Hæstv. ráðherra hefur ekki beðið boðanna heldur komið fram með þessa tillögu.

Það sem kannski veldur manni áhyggjum í þessu — nú veit ég að afskaplega góður hópur fólks hefur komið að því að gera þessa tillögu — er það að þessi tillaga hefur verið tvö ár í vinnslu og í raun er hún bara formáli. Þar segir: „lagt er til“, „stefnt skal að“. Hún er mjög vel unnin en það er slæmt að fyrsta þriggja ára framkvæmdaáætlunin skuli ekki fylgja henni. Á bls. 9 í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:

„Eins og fram hefur komið skal vinna þriggja ára verkefnaáætlun sem er hluti af og innan ramma tólf ára áætlunarinnar.“

Mér finnst slæmt að þetta skuli ekki fylgja með. Ég held að þetta hafi ekki heldur verið í öðrum fylgiskjölum; ég varð ekki var við það. Hæstv. ráðherra leiðréttir mig ef það er rangt hjá mér.

Auðvitað erum við að gjalda þess í þessum málaflokki hvernig stjórninni á honum er dreift. Við erum jú með umhverfisráðherra, Umhverfisstofnun; við erum með ferðamálaráðherra og það er í sjálfu sér afskaplega slæmt þegar stjórn á jafn veigamiklum málaflokki er jafn dreifstýrð og nú er. Ég man eftir því að í fyrra lífi mínu átti ég ferð um Lettland með umhverfisráðuneytinu; þar var ferðaþjónusta undir umhverfisráðuneyti og byggðamál reyndar líka. Það er líka eitt sem við þurfum að vera opin fyrir, þ.e. að reyna að gera eitthvað meira til þess að þessir kraftar sem við höfum, sem eru takmarkaðir, séu ekki jafn dreifðir og raun ber vitni.

Þetta hefur líka í för með sér að þeir sem starfa við þessa grein eru sífellt hlaupandi út um allt til að sækja um leyfi, fá þjónustu. Menn eru aldrei vissir um það hvar þeir eigi að bera niður. Og meira að segja, þó það sé óskylt þessu máli, þegar við breyttum hér lögum fyrir þremur árum, til að reyna að koma böndum á heimagistingu, bárum við ekki gæfu til þess að eftirlitið með því að hún væri í lagi yrði einfalt og á einni hendi. Nei við urðum að hafa þetta dreifstýrt. Og hver er árangurinn? Það eru 310 af 3.500 einingum í landinu sem eru skráðar og borga skatta. Þetta er eitt dæmi um það hvað við virðumst vera gjörn á að velja lengstu leiðina að hlutum sem við þurfum að gera og sem við þurfum að gera hratt. Þá kemur að því, sem ég ætlaði að benda hér á næst, að á bls. 11 í greinargerðinni er talið upp hvaða fjármunir fylgja þessari tillögu næstu þrjú árin, 660 milljónir kr. á ári sem er náttúrulega allt of, allt of lítið.

Ég segi aftur: Það er ekki við hæstv. ráðherra að sakast, hann hefur bara verið í þessu embætti í örfáa mánuði. Sá sem hér stendur tekur sinn hlut af þessari sök vegna þess að hann studdi hér á árum áður ríkisstjórn í fjögur ár sem gerði ekkert, ekki neitt, til að koma hér á sérstakri gjaldheimtu af ferðamönnum. Ég sit undir þeirri sök að hafa horft á að ráðherra málaflokksins, sem þá var, kom ekki fram með nokkra einustu tillögu um að reyna að koma á gjaldheimtu sem væri bæði skilvirk og einföld.

Það sem kemur svo fram í stjórnarsáttmálanum loðna er það að menn ætli að stefna að því að skoða hvort hægt sé að innheimta sérstaklega gjöld af ferðamönnum, svo sem eins og komu- eða brottfarargjöld. Og hvenær á það að hefjast? Ja, vinnunni á að vera lokið 2020. En við bara höfum ekki þennan tíma, því miður. Vegna þess að sá ágangur sem fylgir jafn mörgum ferðamönnum og koma hingað til lands á hverju ári skilur eftir sig sár sem verða stærri og stærri og sem erfiðara og erfiðara verður að græða, því miður. Þetta er að minnsta kosti áratugavanræksla sem hér er um að ræða. Enn segi ég: Ég er ekki að beina þessu að þeim ágæta hæstv. ráðherra sem nú situr.

Það sem ég segi er einfaldlega: Við getum ekki beðið til 2020 eftir því að fá hér gjöld á ferðamenn svo að hægt sé að stórauka uppbyggingu grunnstoða til að vernda náttúru á Íslandi. Og það er líka annað, af því að ég tek undir það sem hv. þm. Óli Björn Kárason sagði hér áðan, um frjálsa för um landið: Við Íslendingar erum svolítið klofnir í herðar niður þegar kemur að þessu. Jú, við viljum hafa frjálsa för um landið, okkur dreymir um að geta gengið landið horn í horn og brotið ís á læk til að fá okkur að drekka og veitt fisk á öryggisnælu með snærisspotta. Þetta er mjög rómantískt. En elsta lagagreinin sem þessu fylgir var gerð þegar 40 þús. manns voru á landinu sem gengu á milli á sauðskinnsskóm eða riðu hesti milli landshluta. Talandi um það að lagabókstafur sé barn síns tíma, og þessi er nú búinn að duga nokkuð vel, þá var hann ekki gerður fyrir það að hér væru 350 þús. manns búandi og 2,5–2,8 milljónir ferðamanna sem kæmu hér árlega. Þetta var bara ekki svoleiðis.

Ég er alveg sannfærður um að við eigum að reyna að læra af því sem erlendar þjóðir hafa gert best. Ég er alveg sannfærður um að við gætum t.d. leitað í smiðju til Þjóðverja. Við gætum leitað í smiðju til Bandaríkjamanna sem hafa skipulagt sín svæði. Þeir innheimta en það er líka búið að ganga þannig frá svæðunum, og menn eiga að ferðast þannig um þau, að það fer ekkert á milli mála hvaða „rétt“ ferðamaðurinn á og hvaða rétt náttúran hefur. Auðvitað eigum við að taka þetta okkur til fyrirmyndar og við eigum ekkert að vera smeyk við að sækja okkur þessa þekkingu. Ég heyrði fyrir fjórum árum af þýskum manni sem hefur tengsl til Íslands, hann er búinn að hjálpa Afríkuþjóðum að byggja upp eina átta eða tólf þjóðgarða. Auðvitað eigum við að leita í smiðju til manna sem búa yfir þessari þekkingu. Við eigum ekki alltaf að reyna að finna allt upp sjálf. Það er búið að gera þessa hluti mjög vel, mjög oft áður.

Auðvitað er þessi þingsályktunartillaga gott fyrsta skref en okkur liggur bara svo rosalega á næstu skrefum. Þess vegna, eins og ég sagði hér áðan, getum við ekki beðið til 2020 eftir að taka hér upp komu- eða brottfarargjöld. Við þurfum að setja lög um það núna, ef ekki á þessu þingi þá á haustþingi, og láta það taka gildi 1. janúar 2019. Síðan þurfum við náttúrlega að innheimta af þessari svörtu atvinnustarfsemi, sem ég benti hér á áðan, en það kom fram í skýrslu í síðustu viku að hún velti 20 milljörðum í fyrra. Ef við gefum okkur að þessi 10% starfseminnar séu stærstu aðilarnir í geiranum og þeir ráði yfir 25–30% af öllu því gistirými sem ég var að tala hér um áðan þá eru samt 14–15 milljarðar eftir sem sköttum og skyldum er ekki skilað af. Fyrir utan það að öryggið sem er boðið upp á er ekkert því að mikið af þessu húsnæði hefur ekki verið tekið út af slökkviliði. Meðan við högum okkur svona þá getum við ekki búist við því að ná árangri. Auðvitað fer þetta þannig að lokum, og ég ætla nú ekki að taka undir með þeim sem halda að ferðamennskan geti hrapað hér niður úr öllu valdi á engum tíma, að þessi upplifun sem menn eru að leita að visnar og hverfur, ef við pössum okkur ekki.

Ég þakka ráðherranum kærlega fyrir þessa tillögu. En það þarf mjög margt að fylgja með sem við getum ekki beðið lengi eftir.