148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.

479. mál
[18:12]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir þessa ræðu. Ég vil líka þakka hæstv. ráðherra fyrir hans flutning á þingsályktunartillögunni. Ég hlustaði á hana og fagna henni en vil jafnframt taka undir orð hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar um að hún sé byrjun á verkefni sem maður sér ekki fyrir endann á. Ég kveð mér hljóðs til andsvars vegna þess að þingmaðurinn talaði um komu- og brottfarargjöld; ég fór hér upp í andsvar við iðnaðar-, ferðamála- og nýsköpunarráðherra um daginn út af þeim gjöldum.

Mig langar til að spyrja þingmanninn hreint út — af því hann talaði um að þetta hefði verið á dagskrá á þinginu 2013–2016, og það skeði ekki neitt, síðan líka á því stutta þingi sem var 2016 — hvort hann geti komið með einhverjar ráðleggingar til ríkisstjórnarinnar um þetta mál og hvers vegna ekki hafi verið tekin nokkur ákvörðun um þetta. Í mínum huga er þetta frekar einfalt mál og þyrfti ekki að vera baggi á þeim sem munu borga gjaldið, en örugglega liðka til og hjálpa okkur til að bjóða upp á betri þjónustu vítt og breitt um landið til móttöku ferðamanna og annað slíkt.