stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þetta svar. Mér verður hugsað til þess, út af þessari endalausu umræðu um þetta mál á sínum tíma og fram til þessa, að ég sat fyrir nokkrum árum í hafnarnefnd vestur í Stykkishólmi. Þá var verið að tala um gjöld af farþegum með ferju, farþegaferju, sem fór mjög fyrir brjóstið á rekstraraðilum þess ágæta fyrirtækis, vegna þess að það myndi verða svo dýrt upp á farmiðann með ferjunni. Þetta voru einhverjar krónur. Þetta tók alveg gríðarlega langan tíma af því að ekki var tekin ákvörðun. Síðan var þessi ákvörðun tekin seinna og enginn tók eftir því. Ég held einmitt að það sé þessi punktur, það þarf bara að taka þessa ákvörðun. Hagsmunaaðilar sem sjá hæng á þessu vegna þess að það yrði til að hækka fargjöld hugsa þetta ekki alla leið. Það myndi örugglega auka við aðsókn ferðamanna til landsins ef við gætum bætt aðgengi og þjónustu vítt og breitt um landið á móti með betri aðkomu.
Eins kemur upp spurning: Hvað þarf að vera til staðar til þess að þetta verði allt saman í góðu standi? Þá meina ég náttúrlega samgöngur, bílastæði, salerni og annað slíkt. Er það nóg? Og hvað kostar það? Þetta er það sem skiptir máli. Umræðan hefur einhvern veginn alltaf farið út um maga og læri, eða sturtast ofan í klósett sem á eftir að tengja, út af þessari flækju allri saman.