148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.

479. mál
[18:30]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. þingmanni fyrir þessa ræðu sem var um margt merkileg. Það var reyndar eitt atriði sem kom fram í andsvari hans áðan við hæstv. ráðherra sem rak mig upp í þennan ræðustól, þ.e. spurningin um uppkaup ríkisins á jörðum, á jarðasafni ríkisins o.s.frv. Í mínu minni, bæði sem ríkisstarfsmanns og alþingismanns, hafa þær jarðir sem eru í eigu ríkisins verið til heimilis á þremur stöðum í stjórnkerfinu ef ég man rétt. Fyrst hjá jarðanefnd, svo af hálfu hjá jarðanefnd undir atvinnuvegaráðuneyti og hjá umhverfisráðuneyti, síðast í fjármálaráðuneyti þegar ég frétti af, þá væntanlega undir einhverri jarðaskrifstofuumsjón.

Spurningin er hvort hv. þingmaður hefur skoðun á því í fyrsta lagi hvernig við eigum að fara með þær jarðir sem margar eru komnar í eigu ríkisins bæði gegnum erfðir og ýmislegt annað og með skilyrðum um að ríkið eigi þær og láti þær ekki af hendi, hvort við gætum hugsanlega gert eitthvert átak í að koma þessum jörðum í ábúð og gera þær þannig að þær drabbist ekki niður og verði sama prýði og þær hafa verið. Það eru líka fólgin verðmæti í því. Margar af þessum jörðum eru einmitt á fjölsóttum ferðamannastöðum og gæti verið mjög gagnlegt að sameina þetta og leigja þær einstaklingum sem eru kappsfullir og vel meinandi, þá væri hægt að fá út úr því rekstur sem hentaði báðum, þ.e. bæði ríki og einstaklingum. Hvað segir hv. þingmaður um það?