148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.

479. mál
[18:32]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég hygg að ég og hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson séum nú ekki langt hvor frá öðrum í þessum efnum. Ég hygg að það séu á milli fimm og sex hundruð jarðir, eða eitthvað slíkt, í eigu ríkisins. Þær eru misjafnar. Sumar eru í eyði, aðrar eru nýttar, sumar eru setnar. Aðrar eru í eigu ríkisins vegna þess að við viljum hafa það þannig. Við viljum að ákveðnar jarðir séu í eigu ríkisins, jarðir sem kemur ekki til greina að aðrir eigi en ríkið, að við eigum þær bara sameiginlega. Þingvellir, Jökulsárlón, jarðirnar þar o.s.frv. Það eru ákveðin rök fyrir því að ríkið eigi jarðir. En það á hins vegar ekki við um stóran hluta þeirra jarða sem ríkið á, sem við eigum sameiginlega. Hættan er sú að þær verði munaðarlausar. Þær eru núna munaðarlausar í skrifborðsskúffu uppi í fjármálaráðuneyti í staðinn fyrir að gera einstaklingum kleift, bændum sem sitja jarðirnar að eignast þær með samkomulagi, gera þeim það kleift með hagstæðum samningum. Ég hygg að það sé skynsamlegt að byrja þar. Það væri líka skynsamlegt að athuga hvort sumar af þeim jörðum sem eru í eyði séu þannig að einkaaðilar gætu fundið not fyrir þær, svo sem í ferðaþjónustu o.s.frv.

Aðalatriðið er að það þurfa að vera rök, menningarleg rök, söguleg rök, rök út frá náttúruverndarsjónarmiðum fyrir því að ríkið eigi jarðnæði og við eigum að standa vörð um slíkar eignir. En við eigum líka að segja: Annað á að vera í eigu einkaaðila.