148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.

479. mál
[18:37]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það sé almennt þannig að jörðum sé ágætlega fyrirkomið í eigu einstaklinga og einstaklingar hafi sýnt það í gegnum söguna að þeir eru ágætlega færir og jafnvel betur færir en hið opinbera, sveitarfélög eða ríki, til að sinna náttúruvernd. Bendi ég t.d. á hvernig til hefur tekist með að vernda íslenska laxastofninn. Ég er alveg sannfærður um ef laxveiðiár á Íslandi hefðu verið í sameiginlegri eigu eða í ríkiseigu ættum við lítið af villtum íslenskum laxi. Það er einmitt eignarrétturinn sem tryggt hefur þar ákveðna vernd.

Ég ætla ekki að tala um Grímsstaði á Fjöllum. Þangað hef ég komið nokkuð oft. Ég hef ekki skilið og skil ekki af hverju ríkið ætti að eiga Grímsstaði á Fjöllum sérstaklega, en ég held hins vegar að það sé annað sem menn ættu að huga að, þ.e. erlent eignarhald á jörðum á Íslandi. Ég hef ákveðnar áhyggjur af því. Ef upplýsingar mínar eru réttar erum við líklegast með eina frjálslyndustu löggjöfina þegar kemur að eignarhaldi erlendra aðila á íslenskum jörðum. Við höfum séð erlenda auðmenn safna þessum jörðum með náttúruhlunnindum, ekki síst laxveiðiréttindum. Ég hef áhyggjur af því. Það kann að vera að það sé nauðsynlegt og kannski er tilefni í kjölfar þess að við samþykkjum þessa þingsályktunartillögu til að við förum að huga að því að herða almennt reglur um eignarhald á jarðnæði á Íslandi. Það veldur (Forseti hringir.) mér áhyggjum. Er ég þó yfir höfuð meiri talsmaður frelsis í þeim efnum en margir í þessum þingsal.