stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni í dag fyrir ágæt innlegg þeirra. Ég ætla að fá að bregðast örlítið við því sem hér hefur komið fram.
Í máli hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar kom fram að kannski mætti líta á þessa þingsályktunartillögu sem ákveðinn formála að því sem koma skyldi. Ég held að það sé alveg rétt. Hér er verið að stíga fyrstu skrefin til að móta þann ramma sem er svo mikilvægur til þess að geta tekist á við viðfangsefnið. Það er gott að við séum þó komin á þann stað að við getum farið að byggja á þessu. Það er talsvert mikil vinna fram undan hvað það varðar.
Aðeins til að bregðast við fyrstu framkvæmdaáætluninni til þriggja ára, þá ber ekki að leggja hana fram til þingsins heldur eingöngu kynna hana fyrir umhverfis- og samgöngunefnd sem búið er að gera. Þær upplýsingar sem koma fram í þingsályktunartillögunni um upphæðir miðast við þær upphæðir sem voru tryggðar með fjárlögum 2018 og þá til þriggja ára. Síðan í fjármálaáætlun núna gerum við ráð fyrir að inn komi aukið fjármagn í þetta. Framkvæmdaáætlunin verður því tekin til endurskoðunar væntanlega strax á næsta ári.
Segja má að við séum nú þegar, ríkisstjórnin, að bregðast við akkúrat því sem þingmaðurinn kom inn á og gagnrýndi hvað varðar skort á fjármagni, sem ég tek heils hugar undir að hefur verið hvað þetta varðar.
Svo vil ég líka benda á að í þessum málum þarf auðvitað að huga að því að þegar svo illa er komið fyrir landi að það er farið að eyðileggjast eru ákvæði í náttúruverndarlögum sem gera okkur kleift að hreinlega loka því tímabundið. Hv. þingmenn hafa án efa fylgst með umræðu um það að undanförnu þar sem hefur þurft að grípa til slíkra úrræða. Það er mjög mikilvægt að hafa þau inni en á sama tíma að við horfum til framtíðar til að geta byggt upp þessa mikilvægu auðlind okkar.
Ég get ekki verið meira sammála hv. þm. Óla Birni Kárasyni um hina efnahagslegu hlið náttúruverndarinnar. Ég segi fyrir sjálfan mig að það er eitthvað í hjarta mínu sem knýr mig til að vilja vernda íslenska náttúru en síðan eitthvað í höfðinu á mér sem segir mér að það sé líka afskaplega skynsamlegt eins og hv. þingmaður kom svo ágætlega inn á, þó ekki væri nema hagfræðinnar vegna, svo ég noti hans eigin orð. Náttúruvernd er arðvænleg eins og hv. þingmaður sagði.
Í því samhengi vil ég benda á þá fyrstu rannsókn sem hefur verið gerð á efnahagslegum áhrifum þjóðgarða á Íslandi, um Snæfellsjökul, sem sýndi að efnahagsleg áhrif hans væru um 3,9 milljarðar á ári, þar af yrði 1,8 eða þar um bil eftir á svæðinu.
Ég held að við munum sjá fleiri rannsóknir í þá átt. Ég mun beita mér fyrir því í ráðuneytinu að við setjum fjármagn í að kanna þessi atriði, þannig að þau verði líka eftirsóknarverðari sem byggðaaðgerð úti um allt land.
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég þakka öllum þingmönnum sem hér tóku þátt kærlega fyrir mjög góðar umræður og tel mjög mikilvægt að við komum málinu hratt og vel áfram þannig að hægt sé að halda áfram að vinna á grunni þessa ramma sem hér er settur fram og óska hv. umhverfis- og samgöngunefnd alls hins besta í störfum hennar með þetta mál.