stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Ég ætla nú ekki að lengja málið frekar, við þurfum að fara að komast í mat.
En mig langar að velta upp einni spurningu, jafnvel tveimur, í sambandi við náttúruverndarmál. Ég er náttúruverndarsinni með stóru N-i þó að ég sé ekki stimplaður grænn. En ég hef unnið með náttúrunni, verið sjómaður og er líka úr eyjum, ættaður úr eyjum, og þekki þá hlið náttúrunnar vel, þar sem maðurinn hefur lifað með þeim í gegnum árin og eru nú margar og flestar komnar í eyði. Og þá hefur stundum verið brugðið á það ráð, ég þekki dæmi þess, að friða eyjar en þær hafa farið mjög illa. Því þá hafa þær farið í illgresi svo sem eins og hvönn og njóla og allt fuglalíf horfið nánast af þeim eyjum. Það þarf að fara gætilega í þessum málum líka.
En spurningin mín er í þá áttina í sambandi við þjóðgarða. Ég hef ekkert fyrir mér í því en ég hef heyrt að í þjóðgörðum sé refurinn okkar íslenski og fái að ganga óáreittur. Það kemur niður á mófugli, hef ég heyrt, og fuglalífi almennt. Er eitthvert eftirlit með ref og mink í þjóðgörðum? Er honum þá haldið í skefjum, eða annað slíkt? Getur umhverfisráðherrann frætt okkur um það?