stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þegar nefnd er hér friðun þá felst í náttúruvernd í rauninni heilmikið litróf eða skali þegar kemur að því hversu mikla friðun eða vernd hún felur í sér, allt frá því að vera mjög mikil friðun í að vera náttúruvernd þar sem ágætlega fer saman alls konar nýting önnur, eins og beit, veiðar og önnur hefðbundin not sem hafa þekkst um aldur og ævi.
Varðandi refi, refaveiðar og minka, minkurinn er framandi tegund í íslenskum vistkerfum og mjög víða er sett fjármagn í að reyna að takast á við útbreiðslu hans og fækka honum. Varðandi refinn er hann eina landspendýrið sem hér var þegar maðurinn kom. Á flestum friðlýstum svæðum nýtur hann friðhelgi, fær að lifa á þeim svæðum án þess að vera veiddur. En öðru máli gegnir um minkinn. Það er meginmunurinn á flestum svæðum, alla vega eins og ég þekki til.