stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029.
Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir þetta. Já, refurinn var hérna þegar við námum land, minkurinn var nokkrum árum síðar fluttur til landsins og nýtur þar af leiðandi ekki sömu friðhelgi og refurinn greinilega. En það sem mér finnst skjóta skökku við er að það skuli ekki skoðað hvort hann valdi tjóni, eins og t.d. að fugl sem hann lifir mikið á skuli þá bara nánast ekki fá að lifa, sé uppurinn, af því að refurinn ræður ríkjum á friðlýstu landsvæði. Tel ég það mjög miður í samhengi þess að mófuglinn hlýtur að hafa búið á Íslandi áður en við námum land. Hann ætti að njóta sömu verndar og refurinn. Þetta er bara mín skoðun.