148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.

480. mál
[19:44]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir hennar innlegg. Ég velti fyrir mér nokkrum atriðum. Í tillögunni kemur fram mikill metnaður í byggðamálum af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það er enginn vafi á því. En ég hef mestar áhyggjur af því hvort þetta séu orðin tóm eins og var með samgönguáætlun, hvort raunin verði sú að minna verði úr efndum með margt af því sem þarna er nefnt og á að stefna að. Ég vona svo sannarlega ekki. Margt af þessu er virkilega gott.

Ég vil spyrja hv. þingmann um flutning starfa sem hún nefndi og ég hef sérstakan áhuga á, út á land. Það vill svo til að hér á höfuðborgarsvæðinu, þessu stóra svæði og fjölmenna, búa 70–80% af öllum landsmönnum. Við verðum að standa vörð um byggðirnar. Þetta með flutning starfa út á land er margskipt. Fyrsta spurningin er: Er vilji til að flytja stofnanir út á land? Er búið að skjóta það alveg í kaf með mislukkun á því sviði á umliðnum árum eða er eitthvað í bígerð? Ég held að það sé oft eina leiðin, það þarf bara að standa öðruvísi að því, taka lengri tíma og flytja á annan hátt en kannski var gert með Fiskistofu.

Varðandi flutning starfa spyr ég líka um flutning verkefna og sérstaklega tilflutning verkefna t.d. til sýslumannsembætta sem eru opinberar stofnanir úti á landi og eru nú orðin fá. Þau eru um átta úti á landi (Forseti hringir.) og eru að koðna niður eins og fram kom áðan. Hvort einhver áætlun sé um að flytja verkefni þangað.