148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.

480. mál
[19:46]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Við hv. þingmaður deilum vilja til að störfum úti á landi, opinberum störfum og störfum almennt, verði fjölgað. Hv. þingmaður nefndi í lok síns andsvars sýslumannsembættin. Ég tel þau vera dæmigerð embætti sem geti tekið að sér ýmis verkefni. Þá erum við ekki að tala um að flytja heilu stofnanirnar heldur geta þau styrkt embættið með því að taka til sín verkefni eins og þau hafa gert í gegnum árin og sýnt fram á að þar fer fram mjög vönduð vinna, hæfur mannskapur, og síðan er húsnæði og annað til staðar. Þetta hefur eflt þessa staði sem hafa tekið til sín verkefni og geta tekið til sín fleiri. Þar eru tækifæri. Ég treysti á að það verði unnið með það í vinnu áfram við byggðaáætlun.

Hv. þingmaður nefnir stofnanir. Ég var ekki hrifin af því að Fiskistofa væri flutt í einu lagi — og brosir nú hæstv. ráðherra. Mér fannst ekki gott að rífa upp með rótum heila stofnun. Það kallar alltaf á miklu meiri ágreining og er erfiðara. Þótt það geti að lokum lukkast vel er það miklu meiri aðgerð í sjálfu sér og getur komið illa við viðkomandi starfshóp.

Nú er verið að tala um, eins og ég skil það, að stofna þjóðgarðastofnun. Hún á auðvitað heima úti á landi og félli vel inn í mitt kjördæmi, svo ég bara nefni það við þá sem hér hlýða á. Hún væri vel fallin til þess að vera t.d. á Hvanneyri. En ég held að það sé vilji til að styrkja opinber störf úti á landi og nú þurfa allir þingmenn að fylgja því vel eftir í fjárlögum.