stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.
Hæstv. forseti. Við fljóta yfirferð sýnist mér byggðaáætlunin hverfast annars vegar um stefnu höfuðborgarsvæðisins og hins vegar um landsbyggðina. Nokkrum sinnum er reyndar talað um landið sem eina heild, sirka sex sinnum á rúmlega 40 síðum, en það fyrsta sem ég rak augun í var að í áætluninni er komið inn á að jafna kostnað þeirra sem sækja afþreyingu til höfuðborgarinnar. Ég velti fyrir mér hvort ekki sé heppilegra að jafna kostnað allra þeirra sem vilja sækja sér afþreyingu því að það getur vel verið að höfuðborgarbúar vilji sækja sér afþreyingu utan höfuðborgarinnar. Þetta var bara lítið dæmi um hvernig hlutunum er stillt upp, einhvern veginn höfuðborg gegn landsbyggð.
Það úr byggðaáætluninni sem mig langar að tala um eru heilbrigðismálin. Það er grunnþjónusta sem verður að vera tryggð í þessari byggðaáætlun. Það er fjallað um héraðslækningar og að fjölga eigi læknum á landsbyggðinni. Allt snýst þetta um aðgengi að sjálfsagðri grunnþjónustu. Ég geri mér grein fyrir því að læknar á landsbyggðinni geta þurft að koma að bráðaaðstæðum og þess vegna þarf að mennta þá frekar til þess. Skoða á að slíkt nám geti orðið að veruleika árið 2020. Þangað til sýnist mér að viðhalda eigi verktakamenningu lækna sem var til umræðu í fjölmiðlum um daginn. Í þessu sambandi má minna á skýrslu Ríkisendurskoðunar um Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda að heilbrigðisþjónustu þar sem fram kom að skortur væri á markvissri stefnu.
Aðeins er tæpt á fjarlækningum í áætluninni og sagt að Ísland geti gert betur. Ljóst er að það þarf að haga vinnunni með mun markvissari hætti en boðað er og ég vona svo sannarlega að frekari útfærsla komi fram í heilbrigðisstefnu sem boðuð hefur verið. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er í dag algjörlega óásættanlegt. Það er ekkert eðlilegt við það að fólk þurfi að ferðast um langan veg eftir nauðsynlegri þjónustu og fái svo jafnvel ekki allan kostnað greiddan. Það er nefnilega ekki hægt að lækna allt í gegnum netið. Mér dettur þó í hug hvort ekki geti verið hugmynd að auka sérstöðu sjúkrahúsanna hringinn í kringum landið og færa starfsfólkið á milli þeirra. Það er þrátt fyrir allt aðeins færanlegra en sjúklingarnir sjálfir. Við þekkjum nú þegar dæmi þess að sérfræðilæknar fari á milli staða og það virðist ganga vel þar sem það er gert.
Oft er talað um að bregðast verði við þeirri þróun að öll þjónusta við landsmenn endi á suðvesturhorninu. Við vitum dæmi þess að fólk hefur mátt flytja úr heimabyggð sinni til þess eins að eiga kost á viðunandi grunnþjónustu þannig að öryggi sé tryggt. Þessi atriði ásamt fleirum eru grundvallaratriði sem snúa að því að jafna aðgengi að þjónustu.
Mér finnst mjög eðlilegt að þessir þættir sem ég hef talað um hér, sem snúa þó aðeins að mjög afmörkuðum hluta byggðastefnunnar, eigi að rúmast mun betur innan áætlunarinnar og vera þá undir hatti byggðaáætlunar sem snertir Ísland allt.