148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.

480. mál
[20:59]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við byggðaáætlun, þ.e. tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun til sjö ára, þá fyrstu sem er fjallað um eftir að ný lög um opinber fjármál tóku gildi og þá fyrstu sem hefur þar með bein tengsl við fjármálaáætlun sem er til vinnslu samhliða. Mér hefur fundist mjög ánægjulegt að sjá að mörg þeirra verkefna sem eru í byggðaáætlun eru jafnframt sýnileg í fjármálaáætluninni. Annars staðar þar sem verkefnin eru ekki beint sýnileg er augljóst að gert er ráð fyrir þeim.

Byggðamál eru öll þau viðfangsefni sem hafa áhrif á lífsgæði og samkeppnishæfni landshluta, svo sem búseta, atvinna og nýsköpun. Þau snúa að eflingu samfélaga, eflingu félagsauðs, atvinnulífs, menntunar, menningar, velferðarmála, samgangna og fjarskipta. Fyrir mér snúast þau í stuttu máli um jafnrétti til búsetu, val um hvar fólk sest að, hvort sem það er í borg, þéttbýli eða í strjálbýli, síðan um samkeppnishæfni samfélaga, sveitarfélaga eða landshluta. Stjórnvöld hafa mikil áhrif á þessa þætti með aðgerðum eða aðgerðaleysi í uppbyggingu innviða.

Það er þess vegna mjög mikilvægt að allar þær ákvarðanir sem við tökum um úthlutun fjármagns séu alltaf speglaðar í þeirri byggðaáætlun sem er í gildi hverju sinni. Eins og einhverjir hv. þingmenn sem hér hafa tekið þátt í umræðunni hafa nefnt þá ættum við að meta flest þau frumvörp sem við fjöllum um jafnframt út frá því hvaða áhrif þau hafa á byggðaþróun.

Í þessari tillögu sem við ræðum hér eru yfir 50 aðgerðir. Það eru margar aðgerðir sem ég hef lengi haft áhuga á eða hafa verið mér hjartans mál. Ég ætla að koma inn á nokkrar þeirra.

Fyrst langar mig að ræða um eflingu rannsókna og vísindastarfsemi. Þar er verið að leggja áherslu á að tengja betur saman svæðisbundna sérstöðu samfélags, atvinnulífs og/eða náttúru, stuðla að faglegum tengslum milli háskóla og rannsóknastofnana og fyrirtækja á hverju svæði. Þetta er lykilatriði í svo mörgu; í nýsköpun, í atvinnulífinu og hefur tengingu við uppbyggingu og aðgang að háskólanámi um land allt. Í þessu sambandi er mjög mikilvægt að beita samkeppnissjóðum þannig að þeir taki mið af akkúrat þessu markmiði við mótun áherslna í sínu starfi hverju sinni. Þessi aðgerð tengist svo aftur aðgerðum um nýsköpun í matvælaiðnaði og aðgengi að háskólanámi.

Næst langar mig að nefna nærþjónustu við innflytjendur sem er auðvitað mjög mikilvæg. Nú kallar atvinnulífið á mikið af nýju fólki. Hér hefur flust margt fólk til landsins á síðustu mánuðum. Ég sé í mínu umhverfi að það er mikið af ungu fólki frá Austur-Evrópu sem er mjög tilbúið að læra, bíður spennt eftir að læra íslensku og læra á samfélagið. Þess vegna er aðgerðin sem þarna er nefnd, íslenskukennsla í heimabyggð, afskaplega mikilvæg. Ég þekki dæmi þess að því sem er úthlutað í gegnum Rannís til íslenskukennslu fullorðinna mun ekki duga nema út vorönnina í ákveðnum landshlutum. Þarna þurfum við að horfa á hvernig við getum fylgt þessu markmiði eftir.

Það hafa nokkrir, bæði í þessari umræðu og umræðunni hér á undan, stoppað við aðgerðina um bújarðir í eigu ríkisins, þ.e. að gerð verði eigandastefna fyrir bújarðir í eigu ríkisins. Þetta skiptir auðvitað mjög miklu máli bæði við uppbyggingu í landbúnaði, varðandi náttúruvernd og nýtingu lands, til að binda kolefni og endurheimta landgæði og hlýtur að tengjast því hvernig við nýtum landið við mótun byggðar. Eins og var komið inn á í umræðunni um innviðaáætlunina áðan þá skiptir auðvitað máli að við höfum stefnu ekki bara varðandi landnýtingu á landi í eigu ríkisins, heldur líka hverjir geta átt land, því að land sem er í eigu aðila sem ekki hefur þar neina starfsemi nýtist auðvitað ekki samfélaginu og hefur ekki áhrif á atvinnulíf þar.

Ein aðgerð sem mig langar að nefna hér er að endurgreiðslukerfi námslána verði nýtt til að hvetja fólk til þess að setjast að á landsbyggðinni, sérstaklega fólk af þeim fagsviðum þar sem skortur er á fólki. Það er mjög mikilvægt verkefni sem hefur reynst vel í nágrannalöndum okkar.

Síðan eru nokkrar aðgerðir sem tengjast flugi, flug sem almenningssamgöngur, jöfnun á aðstöðumun á millilandaflugvöllum, opnun fleiri flughliða eða gátta inn í landið með því að fylgja eftir flugþróunarsjóði sem tók til starfa fyrir ári síðan og síðan áfangastaðaáætlanir sem mig langar að gera sérstaklega að umtalsefni. Kynning og innleiðing áfangastaðaáætlana er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi landsvæði, þar með talið þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis.

Þarna hafa markaðsstofur landshlutanna unnið sameiginlega að því að stýra uppbyggingu og þróun svæða og skilgreina hlutverk hagsmunaaðila. Það er gert ráð fyrir að gerð áætlunarinnar ljúki í vor og þær verði kynntar í landshlutum og gerðar aðgengilegar öllum haghöfum. Þessum áætlunum þarf síðan að fylgja eftir með markaðsstarfi. Þá kannski kemur svolítið að samhæfingarhlutverki okkar hér á þinginu, að þessum áætlunum verði fylgt eftir. Við höfum tvö frumvörp til umfjöllunar, annars vegar um Ferðamálastofu og hins vegar Íslandsstofu, en markaðsstofur landshlutanna hafa unnið að þessum áætlunum í samstarfi við þær og það er mjög mikilvægt að við þær lagabreytingar sem fyrirhugaðar eru þá verði þessu markmiði vel fylgt eftir.

Í áætluninni eru mjög mikilvæg verkefni sem tengjast betri orkunýtingu og betra aðgengi að raforku um land allt. Varmadæluvæðing er eitt af þeim verkefnum sem ég veit að horft er til víða í strjálbýlinu, fólk er farið að bíða eftir því hvert það getur snúið sér til þess að fylgja þessu verkefni eftir, því að þarna er hægt að ná fram verulegum sparnaði fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Ég hlakka til að fá að kynna mér þessi verkefni betur í umhverfis- og samgöngunefnd og vinna með þessa áætlun og fá enn betri upplýsingar um þá mælikvarða sem á að leggja á verkefnin og það samráð sem liggur þarna að baki.