stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni andsvarið. Eins og þingmaðurinn þekkir er fjármálaáætlun ekki þannig sett fram að hægt sé að rekja hana alveg niður á einstök verkefni, en það er þó ótrúlega víða hægt með þessi verkefni, t.d. öll verkefnin sem snúa að orkumálunum. Önnur verkefni lít ég þannig á að séu fjármögnuð í áætluninni þó að maður geti ekki rakið beint niður á þau lið fyrir lið vegna þess að það á eftir að deila út á málaflokkana nokkuð víða.
Auðvitað eru þarna verkefni sem ég leyfi mér alveg — ég nefndi þarna eitt verkefni sem ég veit að er ekki fjármagnað, en það er í rauninni kannski smávægilegir peningar í heildarmyndinni, þannig að það er bara spurning um að fylgja því eftir. En auðvitað er það hluti af vinnu nefndarinnar síðan að ganga betur eftir því hvar hvert og eitt verkefni liggur í fjármálaáætluninni. Eins og gerð er grein fyrir í greinargerðinni með tillögunni þá sé ég ekki annað en að það sé fjármagn sem fylgi, heildarramminn sé fjármagnaður.