148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.

480. mál
[21:13]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir að hvort tveggja, fjármálaáætlun og byggðaáætlun, hafi verið vel og vandlega kynnt í stjórnarflokkunum. Ég ætla þá bara að einfalda þetta og spyrja hv. þingmann: Er byggðaáætlun fullfjármögnuð í fjármálaáætlun?