stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Við getum kannski verið sammála um að Alexandersflugvöllur sé þá framtíðarmúsík í þessu máli. Það er sannað mál að veðurskilyrði þar eru oft mjög góð til lendingar þegar þau eru ekki góð annars staðar, t.d. á Akureyri eða á því svæði. En þetta er gríðarlega mikið mál. Ég veit að hv. þingmaður er mjög mikið inni í þessum flugvallarmálum þannig að ég tek mark á því sem hann segir.
Í sambandi við raforkuflutningskerfið, meginkerfið og afhendingaröryggi raforku, þá kom þingmaðurinn inn á það að skoða frekar, sem er ekki í áætluninni, tengingu um Kjöl, Kjalveg eða þá leið. Ég geri mér grein fyrir að það er ekki í stjórnarsáttmála að skoða það mál að svo stöddu en ég veit að hv. þingmaður hefur skoðun á því. Ég er sammála honum í því að við þurfum að þora að taka þessa umræðu, hver þörfin er fyrir fólkið í landinu, þá sem þurfa að nota rafmagn, í staðinn fyrir að einblína alltaf á eina hlið málsins sem eru umhverfismál sem við þurfum samt sem áður að taka mark á líka og taka þá umræðu alvarlega. Ég hef í raun ekki spurningu í sambandi við þetta, en ég tók eftir því að hv. þingmaður kom inn á þetta í ræðu sinni og ég vildi hnykkja á því að ég er sammála honum hvað það varðar.