réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands o.fl.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. Í ljósi þess hversu langt heiti þessara laga er hafa þau stundum verið kölluð lög um útsenda starfsmenn í almennu tali og ég mun nýta mér það til styttingar í máli mínu þegar ég mæli fyrir þessu frumvarpi.
Frumvarp þetta hefur áður verið lagt fram hér á Alþingi eða nánar til tekið á 146. löggjafarþingi en hlaut þó ekki afgreiðslu á því þingi. Tilteknar breytingar hafa nú verið gerðar á frumvarpinu, m.a. í ljósi athugasemda sem bárust Alþingi þegar það var lagt fram síðast. Frumvarpið var unnið í samráði við Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins, Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun. Samhliða þeim breytingum sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir á ákvæðum laga um útsenda starfsmenn eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á ýmsum öðrum lögum sem gilda á innlendum vinnumarkaði, ekki síst til að gæta samræmis þegar kemur að sambærilegu ákvæði í mismunandi lögum.
Megintilgangur frumvarpsins er innleiðing tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um framfylgd eldri tilskipunar um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu o.fl.
Markmið frumvarpsins er að veita íslenskum stjórnvöldum betri yfirsýn yfir stöðuna á innlendum vinnumarkaði, að því er varðar starfsemi erlendra þjónustuveitenda, þ.m.t. starfsmannaleigna hér á landi sem og fjölda og stöðu erlendra starfsmanna er starfa hjá slíkum fyrirtækjum hérlendis. Enn fremur er markmiðið að styrkja það eftirlit sem tíðkast á íslenskum vinnumarkaði þannig að koma megi í veg fyrir að þjónusta yfir landamæri leiði til félagslegra undirboða. Á þetta einkum við um útsendingu starfsmanna og starfsemi starfsmannaleigna.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir ríkari upplýsingaskyldu erlendra þjónustuveitenda, þ.m.t. starfsmannaleigna og sjálfstætt starfandi einstaklinga. Samkvæmt gildandi lögum, svo sem hvað varðar efnahagslega starfsemi hlutaðeigandi í heimaríki, er slík starfsemi forsenda þess að heimilt sé að veita þjónustu yfir landamæri á grundvelli samnings um Evrópska efnahagssvæðið. Þess var þó gætt að framkvæmdin yrði einfölduð þannig að þetta feli ekki í sér hindrun á frjálsum þjónustuviðskiptum á grundvelli EES-samningsins.
Í þessu sambandi er í frumvarpinu jafnframt gert ráð fyrir auknu samstarfi Vinnumálastofnunar við þar til bær stjórnvöld í heimaríki hlutaðeigandi þjónustuveitanda, m.a. þegar kemur að því að sannreyna hvort erlendur þjónustuveitandi sé sannarlega með efnahagslega starfsemi í heimaríki. Gert er ráð fyrir að þær stofnanir sem hafa eftirlit á vinnumarkaði geti miðlað upplýsingum sín á milli verði þær áskynja um upplýsingar sem þykja benda til félagslegra undirboða í því skyni að koma í veg fyrir brot á ákvæðum laga um kjarasamninga, enda séu upplýsingar nauðsynlegar í þágu eftirlits viðkomandi stjórnvalds.
Lagt er til að Vinnumálastofnun verði heimilt að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki, þ.m.t. starfsmannaleigur sem veita stofnuninni ekki upplýsingar og/eða aðgang að gögnum. Enn fremur er gert ráð fyrir að það sama geti átt við í þeim tilvikum þegar stofnuninni hafa verið veittar rangar eða ófullnægjandi upplýsingar óháð því hvort um ásetning eða gáleysi hefur verið að ræða. Er þetta lagt til í því skyni að tryggja eins vel og unnt er að fyrirtæki, þar á meðal starfsmannaleigur, sinni upplýsingaskyldu sinni þannig að Vinnumálastofnun geti sinnt því eftirliti sem stofnuninni hefur verið falið samkvæmt lögum.
Vinnumarkaðurinn hér á landi er vel skipulagður með öflugum samtökum launafólks og atvinnurekenda sem semja sín á milli í kjarasamningum um laun og önnur starfskjör starfsmanna sem eru þátttakendur á innlendum vinnumarkaði sem og um aðra þætti er varða hagsmuni launafólks og atvinnurekenda.
Árið 1980 voru sett lög hér á landi um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, þar sem meðal annars er kveðið á um að laun og önnur starfskjör, sem samtök aðila vinnumarkaðar semja um, skuli vera lágmarkskjör á íslenskum vinnumarkaði. Jafnframt kemur fram í framangreindum lögum að samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveða skuli ógildir. Lögin voru sett í því skyni að tryggja að launamenn á innlendum vinnumarkaði njóti ekki lakari kjara en þeirra sem samið er um í kjarasamningum. Þannig er öllum fyrirtækjum sem starfa hér á landi, erlendum jafnt sem innlendum, óheimilt að bjóða starfsmönnum sínum lakari kjör en samið hefur verið um í kjarasamningum óháð því hvort hlutaðeigandi fyrirtæki eru aðilar að viðkomandi kjarasamningum eða ekki. Í samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2004 er meðal annars áréttað að það sé sameiginleg skylda þeirra og verkefni að verja það fyrirkomulag sem gildir á íslenskum vinnumarkaði og þá sérstaklega að ákvarða um kaup og önnur starfskjör með kjarasamningum. Jafnframt er áréttað að öllum fyrirtækjum beri að virða þau lög og kjarasamninga sem hér gilda, óháð þjóðerni viðkomandi fyrirtækis eða starfsmanna þess. Þessi yfirlýsing undirstrikar mikilvægi þessa fyrirkomulags á vinnumarkaði sem hér gildir. Sama gildir um þær skyldur sem samtök aðila vinnumarkaðarins hafa axlað til að fylgja því eftir að farið sé að leikreglum á vinnumarkaði.
Í ljósi framangreinds er í frumvarpinu gert ráð fyrir að í lögum um útsenda starfsmenn verði kveðið á um svokallaða keðjuábyrgð notendafyrirtækja í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð. Gert er ráð fyrir að ábyrgðin nái meðal annars til vangoldinna lágmarkslauna starfsmanna sem starfa hér á landi á vegum fyrirtækis um veitingu þjónustu á grundvelli þjónustusamnings fyrirtækis eða notendafyrirtækis. Jafnframt er gert ráð fyrir því að ábyrgðin nái til vangoldinna lágmarkslauna starfsmanna annarra fyrirtækja sem hafa gert þjónustusamninga sem byggjast á fyrrnefndum þjónustusamningi án þess að um sé að ræða beint samningssamband milli umræddra fyrirtækja og notendafyrirtækis.
Er þetta meðal annars lagt til í samræmi við 12. gr. tilskipunarinnar sem frumvarpinu er ætlað að innleiða en þar er kveðið á um slíka ábyrgð í tilteknum starfsgreinum Þannig er frumvarpinu meðal annars ætlað að stuðla að jafnri samkeppnisstöðu fyrirtækja í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð á íslenskum vinnumarkaði með því að koma í veg fyrir að erlend fyrirtæki, sem virða ákvæði laga gildandi kjarasamninga að vettugi, eigi samkeppnisforskot á önnur fyrirtæki, sem fara að lögum og reglum.
Þrátt fyrir að í frumvarpi þessu sé gert ráð fyrir að fyrst um sinn eigi umrædd ábyrgð notendafyrirtækis í lögum um útsenda starfsmenn einungis við um notendafyrirtæki í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð er gert ráð fyrir því að fylgst verið grannt með aðstæðum á vinnumarkaði þannig að unnt verði að grípa inn í með því að leggja til breytingu á lögunum verði aðstæður með þeim hætti að mikilvægt þyki að kveða á um að notendafyrirtæki með starfsemi innan fleiri atvinnugreina beri umrædda ábyrgð á grundvelli laga um útsenda starfsmenn. Komi til aðstæðna á vinnumarkaði sem kalla á slíka lagabreytingu er gert ráð fyrir að frumvarp til breytinga á lögum um útsenda starfsmenn verði lagt fram á Alþingi að höfðu samráði við samtök aðila vinnumarkaðar.
Til viðbótar við það sem ég hef hér nefnt, varðandi svokallaða keðjuábyrgð, sem gert er ráð fyrir að kveðið verði á um í lögum um útsenda starfsmenn, er í frumvarpinu gert ráð fyrir sambærilegri ábyrgð notendafyrirtækis í lögum um starfsmannaleigur. Eðli máls samkvæmt er þó ekki um eiginlega keðjuábyrgð að ræða í þeim tilvikum þegar um starfsmannaleigustarfsmenn er að ræða þar sem almennt er ekki um að ræða sambærilega keðju undirverktaka í slíkum tilvikum og þegar um útsenda starfsmenn er að ræða á grundvelli laga um útsenda starfsmenn. Enn fremur er ekki gert ráð fyrir í frumvarpinu að ábyrgð notendafyrirtækis, samkvæmt lögum um starfsmannaleigur, takmarkist við tilteknar atvinnugreinar líkt og gert er ráð fyrir í tengslum við keðjuábyrgð í lögum um útsenda starfsmenn sem ég hef áður gert grein fyrir í máli mínu.
Þá er lagt til í frumvarpinu að í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum verði kveðið á um svokallaða verkkaupaábyrgð í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð. Í þessu felst að á vinnustöðum þar sem fleiri en einn atvinnurekandi verður að störfum samtímis við byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð er gert ráð fyrir að það falli í hlut verkkaupa eða fulltrúa hans að skipuleggja og samræma aðgerðir sem tryggja að við hönnun, undirbúning og framkvæmd verks verði gætt fyllsta öryggis, góðs aðbúnaðar og hollustuhátta. Lagt er til að framangreint eigi við um vinnu sem stendur yfir í tiltekinn tíma og skal verktaki jafnframt tilkynna Vinnueftirliti ríkisins um vinnustaðinn áður en vinnan hefst.
Líkt og ég gat um í upphafi þá er megintilgangur frumvarpsins að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um framfylgd eldri skipunar um störf útsendra starfsmanna í tengslum veitingu þjónustu o.fl. Eðli máls samkvæmt snúa því flest ákvæði frumvarpsins að breytingum á lögum um útsenda starfsmenn. Í því skyni að gæta samræmis gerir frumvarpið þó ráð fyrir breytingum á ýmsum lögum sem gilda á vinnumarkaði, svo sem lögum um starfsmannaleigur, lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum, lögum um atvinnuréttindi útlendinga, lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Breytingar þessar lúta meðal annars að ákvæðum er varða upplýsingaöflun og samvinnu stjórnvalda sem hafa eftirlit á vinnumarkaði sem og að ákvæðum sem kveða á um heimild til að leggja dagsektir á fyrirtæki sem ekki fara að ákvæðum laga í því skyni að gera eftirlitið skilvirkara en nú er. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að heimilt verði að veita tímabundin atvinnuleyfi einstaklingum sem fengið hafa dvalarleyfi hér á landi og eru hugsanleg fórnarlömb mansals eða eru fórnarlömb mansals. Þykir þetta geta bætt stöðu þessara einstaklinga og aukið líkur á að unnt verði að rannsaka mál þeirra til hlítar. Til viðbótar gerir frumvarpið ráð fyrir tilteknum breytingum á lögum um frjálsa atvinnu og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins sem telja verður nauðsynlegar til þess að umrædd tilskipun teljist að fullu innleidd hér á landi.
Ég hef nú rakið helstu breytingar sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir á ýmsum lögum sem gilda á innlendum vinnumarkaði. Að mínu mati er það afar mikilvægt að frumvarp þetta verði samþykkt sem allra fyrst hér í þinginu, ekki síst í ljósi þess hversu margir erlendir ríkisborgarar starfa á vinnumarkaði hérlendis en árið 2017 voru þeir 12,4% af þátttakendum á vinnumarkaði og hefur hlutfall þeirra aldrei verið hærra hérlendis. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru ríflega 24.000 erlendir starfsmenn þátttakendur á vinnumarkaði hérlendis að jafnaði á árinu 2017 og var það aukning frá árinu 2016 þegar þeir voru ríflega 20.000. Samtals voru 125 erlend þjónustufyrirtæki skráð hjá Vinnumálastofnun á árinu 2017 sem sent höfðu rúmlega 1.800 starfsmenn tímabundið hingað til lands í því skyni að veita hér þjónustu og var fjöldi starfsmanna á vegum starfsmannaleigna, innlendra og erlendra, rúmlega 3.100 til viðbótar á sama tíma.
Þá má geta þess að áætlanir Vinnumálastofnunar gera ráð fyrir að ekki dragi úr umsvifum erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn hingað til lands í því skyni að veita hér þjónustu sem og erlendra starfsmannaleigna á íslenskum vinnumarkaði á næstunni, heldur komi umsvifin til með að aukast enn frekar á komandi árum. Erlendum þátttakendum á vinnumarkaði hér fer því fjölgandi ár frá ári og um það er engum blöðum að fletta. Að mínu mati verðum við að bregðast við þessari þróun í því skyni að tryggja eins og kostur er að þau erlendu fyrirtæki sem senda starfsmenn hingað til lands til að veita hér þjónustu, þ.m.t. starfsmannaleigur, fari að þeim reglum sem hér gilda. Í því sambandi er ekki síst mikilvægt í mínum huga að þeir starfsmenn sem um ræðir njóti þeirra launa og starfskjara sem þeim ber samkvæmt lögum og kjarasamningum sem hér gilda.
Virðulegur forseti. Að lokum legg ég að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu. Frumvarpið hefur verið unnið í mjög góðri sátt og samvinnu við alla helstu aðila vinnumarkaðar. Ég vænti þess að hv. velferðarnefnd taki þetta mál góðrar skoðunar og afgreiði það fljótt og vel eða geri á því breytingar sem nefndin telur mikilvægar.