148. löggjafarþing — 52. fundur,  18. apr. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá félags- og jafnréttismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 501, um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra, frá Birni Leví Gunnarssyni.

Borist hefur bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 384, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.

Loks hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 648, um aðgerðaáætlun fyrir Stjórnarráðið, frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur.