framkvæmd alþjóðlegra skuldbindinga er varða flutning á vopnum.
Herra forseti. Ég kem hingað upp einfaldlega til að hrósa hæstv. forseta fyrir að hafa lagst yfir þetta og farið í ítarlega vinnu og lagt fram þennan úrskurð. Ég vil sérstaklega hrósa forseta fyrir það um leið og ég vil í öðru lagi líka aftur hrósa hæstv. forseta fyrir það frumkvæði að eiga samtal við framkvæmdarvaldið, við ríkisstjórnina, sem við lásum um fyrr í vikunni varðandi það hvernig hægt er að auka einmitt virðingu þingsins, hvernig hægt er að taka fyrir skýrslubeiðnir, fyrirspurnir o.s.frv. og setja í skýran farveg.
Ég segi já við þessari skýrslubeiðni um leið og ég þakka hæstv. forseta fyrir þennan úrskurð.