framlög til samgöngumála í Reykjavík.
Virðulegur forseti. Í þeirri fjármálaáætlun sem hæstv. ráðherra nefnir vakti athygli hversu lítið er sett í samgöngumálin, sérstaklega vegna þess að rætt hafði verið um svokallaða stórsókn í samgöngumálum. Raunin varð sú að 5,5 milljörðum er bætt í málaflokkinn á ári út þetta kjörtímabil og dugar rétt svo til að komast upp í gömlu samgönguáætlunina. Það er nú öll stórsóknin.
Það hefði því sannarlega komið mér á óvart ef hæstv. fjármálaráðherra ætlaði að fara í viðræður um að ríkið færi að bæta í verkefni sem kosta tugi milljarða og sem í tilviki borgarlínu getur hæglega farið yfir 100 milljarða. En ég skildi svar hæstv. ráðherra sem svo að ekki sé svigrúm til þess, að borgin, borgaryfirvöld geti ekki vænst þess að fá fjármagn í borgarlínu eða setja Miklubraut í stokk, frá hæstv. fjármálaráðherra, frá ríkissjóði. Ef mér skjátlast bið ég ráðherrann einfaldlega að leiðrétta það.