samningur um heimaþjónustu ljósmæðra.
Forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra annars þar sem svo misvísandi upplýsingar koma fram. Ég er búin að vera að tala við ljósmæður og spyr hvort hæstv. ráðherra hafi talað við ljósmæður eða sé í sambandi við ljósmæður. Það kemur hvergi fram að ljósmæður eru að biðja um hækkun á þessum samningi til að þær geti sinnt áfram heimaþjónustu við þennan viðkvæma hóp sem kallast C-flokkur, að það sé ekki löngun til að skerða þessa þjónustu heldur þurfi einungis aukningu í samninginn til þess að geta sinnt henni áfram. Hefur það komið í ljós í þessu minnisblaði frá Sjúkratryggingum Íslands? Ef ekki, hvers vegna?
Mér heyrist það sem ljósmæður eru að segja og það sem kemur frá ráðuneytinu ekki vera sami hluturinn. Ég vil biðja ráðherra um að bregðast aðeins við þessu, útskýra hvort ekki væri vænlegast — ef þetta er rétt, að það vanti bara hækkun (Forseti hringir.) í samninginn — að veita ljósmæðrum þá hækkun til að þær geti haldið áfram að sinna þessari þjónustu. Ætlar ráðherra að veita þeim þessa hækkun?