samningur um heimaþjónustu ljósmæðra.
Virðulegi forseti. Í minnisblaðinu, sem kemur frá samningadeild Sjúkratrygginga Íslands, eru ekki dregnir upp valkostir. Engir valkostir eru dregnir upp heldur sagt: Ef gengið er að — ekki væntingum alla leið um hækkun heldur ef tímagjaldið er hækkað, þó stendur ekki í minnisblaðinu nákvæmlega hvert það eigi að vera, þarf að minnka þjónustuna á móti. Það er það sem tillagan gerir ráð fyrir eða minnisblaðið.
Svo má kannski nefna það hér að í þessu minnisblaði frá Sjúkratryggingum Íslands stendur:
„Þar sem kjaraviðræður ljósmæðra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa blandast inn í gerð þessa samnings er út frá því gengið að honum verði ekki lent fyrr en eftir gerð kjarasamningsins.“
Þetta er bara einhver afstaða Sjúkratrygginga Íslands sem kemur inn á borð hjá okkur í ráðuneytinu. Það hljóta allir að sjá að full ástæða er til þess að funda bæði með Sjúkratryggingum og síðan með Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri og vera í sambandi við ljósmæður.
Já, ég hef talað við ljósmæður. Ég hef rætt við (Forseti hringir.) formann félagsins. Ég hef verið í óformlegum samskiptum við allnokkrar ljósmæður á undanförnum sólarhringum. (Forseti hringir.) En ég fékk ekki upplýsingar formlega um að þessar aðgerðir væru fyrirhugaðar, (Forseti hringir.) í raun og veru ekki fyrr en ég leitaði eftir því í gærkvöldi.