148. löggjafarþing — 53. fundur,  23. apr. 2018.

króna á móti krónu skerðingar.

[15:31]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég er búin að heyra þetta. Ég þakka hæstv. velferðarráðherra fyrir akkúrat ekki neitt, vegna þess að þetta er það sem ég er búin að heyra hér í allan vetur. Ég er enn að velta því fyrir mér hvað sé í raun sammerkt með krónu á móti krónu skerðingu og starfsgetumati. Það er bara akkúrat ekki neitt. Það er ekkert því til fyrirstöðu að afnema krónu á móti krónu skerðinguna og gera það afturvirkt nákvæmlega til þess dags sem hún var afnumin hjá eldri borgurum.

Það er ákveðin regla í stjórnarskrá, 65. gr. stjórnarskrárinnar, jafnræðisreglan. Okkur er ekki heimilt að mismuna þegnunum svona gróflega eins og gert er með krónu á móti krónu skerðingu. Ég spyr aftur: Hvað er sameiginlegt með því að fara í starfsgetumat og afnema krónu á móti krónu skerðingu? Það er algjörlega gjörólíkt.

Það þarf ekkert samráð. Það þarf ekkert samtal. Það þarf bara aðgerðir. Það þarf bara vilja. Og það þarf bara að afnema þetta. Það er ekki flóknara en það.

Þess vegna segi ég: Þið megið skoða þetta starfsgetumat í allar áttir, það er bara vel, en króna á móti krónu skerðing þarf að fara burt. Núna. Svo að öryrkjar komist í frí. Svo öryrkjar geti um frjálst höfuð strokið og hugsanlega litið bjartari dag.