stefnumótun í fjármálaáætlun og fjárlögum.
Hæstv. forseti. Ég vísa til þess sem ég sagði áðan, auðvitað geta menn haft mismunandi sýn á það hversu langt eigi að ganga í því að sýna fram á að á bak við öll markmið séu tilteknar fjárhæðir og að þær þurfi að vera því nákvæmari eftir því sem menn vilja ganga lengra í þessu efni.
En ef við tökum bara dæmi um kaup á skipi eða þyrlu eða annað þess háttar, að til standi að endurnýja einhvern slíkan skipakost, er ekki einfalt, áður en að hönnun skipsins kemur, að setja einhverja tiltekna krónutölu á bak við slíkt mál, sem fer væntanlega á endanum í útboð. Það er erfitt að gera eitthvað slíkt eins og að setja ákveðna milljarðatölu þar fram án þess einu sinni að tekin hafi verið ákvörðun um hvort það eigi jafnvel að kaupa eða leigja skip. Það eru flækjustig í því þegar menn setja fram langtímaáætlun. (Forseti hringir.) Menn ganga eins langt og hægt er en það verða alltaf einhverjir veikleikar. Hv. þingmaður hefur alveg rétt fyrir sér, þarna er dálítið gat, einhver veikleiki sem rústar kannski ekki heildarmyndinni en er sjálfsagt að ræða.