148. löggjafarþing — 53. fundur,  23. apr. 2018.

vinna íslenskra stjórnvalda vegna innleiðingar þriðja orkupakka ESB.

499. mál
[16:29]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að blanda mér í þessa umræðu. Ég held að í allri pólitískri umræðu um mikilvæg mál sé rétt að horfa til staðreynda.

Ég fagna því að í umræðu um þriðja orkupakkann er búið að draga fram staðreyndir málsins, en það leiðir jafnframt í ljós hversu auðvelt er að afvegaleiða mikilvæga umræðu með upphrópunum, fullyrðingum út í loftið sem hafa ekki við nein rök að styðjast og síðan leiðir hvað af öðru og menn sjást ekki fyrir.

Auðvitað er alltaf sjálfsagt að vera með vakandi auga á EES-samningnum og velta fyrir sér mikilvægi hans og hlutverki, en ég held að menn eigi að nálgast þá umræðu af mjög mikilli ábyrgð, vegna þess að það sem er undir er ekki bara (Forseti hringir.) þriðji orkupakkinn eða einhverjir afmarkaðir hlutir eins og innflutningur á kjöti og þess háttar þar sem (Forseti hringir.) menn vilja taka þetta niður í afmarkaða búta, heldur mjög miklir og stórir hlutir undir. Menn (Forseti hringir.) eiga að horfa á heildarmyndina og menn eiga einmitt ekki að vera hræddir við það.