148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

störf þingsins.

[13:38]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Velmegun Íslands byggist nær alfarið á útflutningi og þjónustuviðskiptum, þar með talið ferðaþjónustu. Við framleiðum t.d. sem nemur 6 milljónum fiskmáltíða á dag en annar útflutningur okkar er á áli, vélbúnaði, landbúnaðarafurðum, lyfjum, hugbúnaði og ýmsu fleira. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að það er grundvallaratriði að hafa góða fríverslunarsamninga við önnur ríki svo tollar og kvótar hindri ekki framgang íslenskra fyrirtækja.

Í dag erum við aðilar að EES-svæðinu sem veitir okkur því sem næst óhindraðan aðgang að hagkerfum 30 Evrópuríkja í viðskiptum með vörur og þjónustu ásamt fjárfestingum og frjálsu flæði á vinnuafli og ótrúlega mörgu öðru. EES-samningurinn er mikilvægasti samningur Íslands, algjörlega. Þessu til viðbótar erum við aðilar að 27 fríverslunarsamningum við 38 lönd í gegnum EFTA-samstarfið og tveimur tvíhliða samningum, milli Íslands og Kína annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar. Þessir samningar snúa fyrst og fremst að vöruviðskiptum og stundum þjónustuviðskiptum, fjárfestingum og öðru. Þeir eru ekki jafn umfangsmiklir og EES.

Alþjóðleg viðskipti eru sífellt að aukast, aukið traust milli landa og flóknara samspil hagkerfa fylgist jafnframt að. Það er töluvert miklu meiri líkur á friði og velmegun í heiminum þegar allir hafa hagsmuni af því að vinna saman. Ef Íslendingar sýna röggsemi í að elta uppi tækifærin, koma Íslandi betur fyrir í alþjóðlegum virðiskeðjum, aukum við hagsældina á Íslandi. Við dreifum efnahagslegri áhættu og fáum að njóta gæðavara hvaðanæva að.

Í ljósi þess hversu mikil fríverslun er fyrir Ísland er full ástæða til að finna að því hvernig sumir ráðherrar núverandi ríkisstjórnar, einkum þá hæstv. fjármálaráðherra, hafa undanfarið gengið fram með haldlausa orðræðu um galla EES-samningsins, okkar almikilvægasta viðskiptasamnings. Það er algjörlega innan marka skynseminnar að skoða hvernig EES-samningurinn hefur verið að virka með ítarlegum hætti líkt og gert var í Noregi fyrir ekki alllöngu en það að tala niður Evrópusamstarfið okkar í einhverri illa ígrundaðri Brexit-vímu er landsmönnum ekki bjóðandi.