148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hinn 25. maí nk. tekur gildi hjá Evrópusambandinu reglugerð sem ég ætla að kalla almennu gagnaverndarreglugerðina. Hún er kölluð General Data Protection Regulation á ensku, skammstöfuð GDPR. Þetta er mesta stökk fram á við í persónuvernd, held ég, frá því að hugtakið sjálft var fundið upp. Þetta er eins og margt gott reglugerð frá Evrópusambandinu. Hér á Íslandi þurfum við að setja þetta í lög og taka upp sama hátt. En hins vegar bólar ekki enn á frumvarpi frá hæstv. dómsmálaráðherra um þetta efni. Það er farið að valda mér miklum áhyggjum og ég hef nefnt þetta áður.

Ef frumvarpið kemur of seint fram og við vinnum það ekki nógu vel er hætt við því að mistök verði gerð við lagasetninguna sem getur haft mjög vond áhrif á hina ýmsu hagsmunaaðila á Íslandi gagnvart því að fylgja þessum nýju lögum. Það getur orðið erfitt, það getur orðið dýrt fyrir fyrirtæki og stofnanir að bregðast við slíkum breytingum og þess vegna er mikilvægt að við gerum þetta vel og að við gerum þetta sem fyrst. Við ættum reyndar að vera löngu byrjuð á þessu. Af þessu hef ég áhyggjur.

Ég hef líka áhyggjur af því að við verðum einfaldlega of sein að þessu. Mig langar ekki að hugsa það til enda. Við verðum að spýta í lófana og koma þessu á ef við ætlum að vera leiðandi á þessu sviði. Það var sú tíð að samhugur var um það á Íslandi að við ætluðum að vera leiðandi í upplýsingafrelsi, í persónuvernd og gagnaöryggi og því um líku. Við erum það ekki. Það eru svona vinnubrögð sem undirstrika þá leiðinlegu staðreynd.

Ég las frétt áðan þar sem kemur fram að Facebook sé að flýja þessa evrópsku löggjöf. Auðvitað þurfti ég að segja vinum og vandamönnum frá þessu og hvert fór ég annað en á Facebook til að segja þeim frá þessu. Þá þurfti ég að uppfæra skilmála sem ég var alfarið ósammála og hafði ekkert um að segja, ég þurfti að samþykkja þá til að segja fólki frá þessu. Að lokum langar mig að leggja til að (Forseti hringir.) þegar GDPR-reglugerðin er orðin að lögum á Íslandi þá gerum við upp á milli fyrirtækja sem fara eftir henni og þeirra sem gera það ekki.