148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Í fréttum undanfarna daga hefur verið fjallað um tilkynningu um kaup Guðmundar Kristjánssonar á ríflega 34% hlut í HB Granda sem kom mörgum fjárfestum á óvart og ekki síst lífeyrissjóðunum. Kjarninn bendir á að svo geti farið að margir hluthafar ákveði að selja hluti sína þvert á vilja Guðmundar. Þetta yrðu umfangsmestu viðskiptin með hlutafé á skráðum markaði hér á landi á undanförnum áratug. Verðið var 16% yfir skráðu markaðsverði þegar tilboðið var sett fram og gefið til kynna að verðmæti alls hlutafjár í fyrirtækinu séu tæpir 64 milljarðar kr. Langstærsti hluti þessa verðmæta er kvóti sem kaupandinn kemst yfir með þessum viðskiptum.

Menn velta fyrir sér ýmsum spurningum varðandi þessi kaup, t.d. hvort reyna muni á hámarkshlutdeild í kvóta. Er þetta of mikil samþjöppun samkvæmt lögum? Hvernig verða kaupin fjármögnuð? Skattgreiðendur eiga ýmislegt undir, ekki bara vegna þess að ríkið á stærsta hluta bankakerfisins, sem hugsanlega lánar fyrir kaupunum, heldur vegna þess að sjávarauðlindin er sameign þjóðarinnar og með hana er verið að versla dýru verði.

Áleitnustu spurningarnar í mínum huga eru:

Hefðu viðskiptin farið fram á þessu verði ef jafnaðarmenn væru í ríkisstjórn og útboð á aflaheimildum væri til umræðu og arði af auðlindinni skipt með sanngjarnari hætti?

Treystir kaupandinn á óbreytt kerfi og lágt veiðigjald?

Er það skoðun allra í núverandi ríkisstjórn að sjávarauðlindin sé sameign þjóðarinnar?

Ef svo er, hvernig samræmast þessi viðskipti þeirri skoðun?

Eru einhver áform uppi um að koma í veg fyrir slíka þróun með verslun á auðlind þjóðarinnar (Forseti hringir.) sem einstaklingar stórgræða á en eigandi auðlindarinnar ber lítið úr býtum og hefur nánast ekkert um kaupin að segja?