148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.

26. mál
[15:14]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Frú forseti. Göfug markmið liggja að baki þessu frumvarpi. Hugmyndafræðin á bak við það gerir ráð fyrir að fatlað fólk stjórni þjónustunni við það sjálft í stað þess að þiggja hana inni á stofnunum eða eftir forskrift stofnana. Það er göfugt markmið að gefa fötluðu fólki kost á því að ráða sér aðstoðarfólk sem hjálpi viðkomandi einstaklingum eftir þörfum í daglegu lífi þeirra.

Til þess að þessi markmið geti orðið að veruleika verða fjárframlög að sjálfsögðu að fylgja. Í umsögn Alþýðusambands Íslands um frumvarpið kemur fram að sambandið hafi efasemdir um að fjárframlög til verkefnisins, alla vega á undangengnum árum, standi undir eðlilegum starfsmannakostnaði. Það er mjög mikilvægt að það sé haft í huga svo markmiðin með þessu ágæta frumvarpi náist. Fjölmargir þættir koma þar inn í og lúta sérstaklega að því ráðningarsambandi sem kæmist þá á, réttindum og skyldum starfsmanna og þeirra sem þarfnast þjónustunnar. Þá þætti þarf að skoða og vanda vel til.

Hvað ráðingarsambandið sérstaklega varðar er mikilvægt að það sé milli starfsmanns og tiltekins lögaðila sem hefur viðurkenningu ráðuneytisins og að ráðningin byggi á viðurkenndum kjarasamningi. Mig langar aðeins að koma inn á vinnuverndar- og aðbúnaðarmál sem lúta sérstaklega að vinnutímamálum og hvíldartíma. Mikilvægt er að þessir þættir séu í góðum farvegi og þarf að móta reglu eins og varðandi vinnuaðstæður, aðbúnað almennt, húsnæði, hjálpartæki og léttitæki og svo skilgreiningu á hugtakinu umönnunarþunga, svo dæmi sé tekið.

Í þessu efni þarf að passa vel upp á hin siðferðilegu álitamál sem komið geta upp og þarf skýrar reglur um hvað starfsmanni ber að gera, hvað er utan hans starfssviðs, hvað honum ber ekki að gera, hverju hann getur hafnað o.s.frv. Þessir þættir eru nefndir í umsögnum við frumvarpið í störfum nefndarinnar. Komið hafa upp ýmis álitaefni í því samhengi og er mjög mikilvægt að taka á því með afdráttarlausum hætti. Það þarf sérstaklega að móta skýrar samskiptareglur á milli þess sem þjónustuna veitir og þess sem nýtir þjónustuna.

Síðast en ekki síst er mjög mikilvægt að fræðslumál, námskeið og annað slíkt, kynningar og fræðsluefni um þessa þjónustu sé aðgengilegt og vel unnið. Hvað þessa framangreindu þætti varðar og fleira þarf að hafa sérstaklega í huga hagsmuni starfsmanna, réttindi og skyldur. En þá er líka mjög mikilvægt að við skoðum framkvæmd NPA á hinum Norðurlöndunum þar sem það er fyrir hendi. Hver er reynslan af slíku fyrirkomulagi og hvað getum við lært af því? Það er mjög mikilvægt að horfa til Norðurlandanna í þeim efnum.

Mig langar aðeins að koma inn á fleira varðandi starfsmannaþáttinn að lokum. Eins og í tilfelli aðstoðarmannsins mun reyna töluvert á svokallaðar taumhaldsskyldur sem felast í raun í því að taka ekki fram fyrir hendur á fólki um ákvarðanir þess. Það er mikilvægt að notandi þjónustunnar gangi ekki gegn sjálfsvirðingu aðstoðarmannsins með fyrirmælum sínum. Það eru þættir sem hafa þarf í huga og hefur nú eflaust komið á borð nefndarinnar, eins og varðandi aðstoðarmanninn, að hann virði notandann sem manneskju sem hefur eigin gildi og sýni honum þá virðingu og það rúm sem honum ber. Það er líka afar mikilvægt að notandinn komi heldur ekki fram við aðstoðarmanninn sem einhvers konar tæki. Þarna reynir sem sagt á fagmennsku, sem er mjög mikilvæg.

Að lokum vil ég segja að viðkomandi þarf að hafa ákveðna starfsdyggð. Það þyrfti að vera eitthvert ákveðið ferli þar sem hægt væri að ganga úr skugga um að það væri fyrir hendi. Sá sem hefur það ekki ætti að mínum dómi ekki að sinna þessu starfi.

Að lokum fagna ég þessu frumvarpi og þeirri góðu vinnu sem farið hefur fram, því góða samráði og samstarfi sem var í nefndinni. Ég árétta að þó svo að þetta mikilvæga mál nái fram að ganga þarf náttúrlega að tryggja fjárveitingar og að við vöndum okkur sérstaklega þegar kemur að ráðningarsambandinu, að ráða fólk til að sinna þessu göfuga og mikilvæga starfi.