148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.

26. mál
[15:52]
Horfa

Frsm. velfn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Frú forseti. Ég vil undir lok þessarar umræðu nota tækifærið til þess að þakka hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni, fyrir þeirra góðu innlegg og ræður hér. Menn hafa tæpt á mörgum þeim málum sem hv. nefnd ræddi, eins og samráðsþáttum, sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristjánsson nefndi og kom hann einnig inn á SIS-matið í ræðu sinni. Við höfum öll vissar áhyggjur af því með hvort peningarnir dugi og hvort kostnaðarskiptingin sé rétt, eins og margir þingmenn hafa komið inn á. Þess vegna er svo mikilvægt að endurskoðunin verði með þeim hætti sem nefndin leggur upp með.

Það er einnig mikilvægt sem fram kom m.a. í máli hv. þm. Vilhjálms Árnasonar, að auðvitað verður þessi tegund þjónustu, NPA, aldrei eina lausnin. Við erum sem betur fer að hverfa frá þeirri hugmyndafræði að hafa samfélag þar sem ein stærð passar fyrir alla. Við viljum miklu frekar fjölbreytt samfélag. Það er einmitt hugsunin á bak við þessa lagasetningu, að gera fötluðu fólki kleift að taka þátt í samfélaginu á eins ítarlegan og gildismikinn hátt, ef það er orð, og kostur er. Það er í rauninni það sem við erum alltaf að reyna.

Eðli málsins samkvæmt verða flóknir NPA-samningar aldrei aðalþjónustuformið í samskiptum fatlaðra einstaklinga og sveitarfélaga. Þess vegna er svo mikilvægt að almenna þjónustan sé reglan. Sveitarfélögin verða að sinna almennu þjónustunni af þeim metnaði sem frumvörpin gera ráð fyrir og tryggja að öllum bjóðist sú þjónusta, því að með þeim hætti minnkum við þau ímynduðu skil sem við erum áreiðanlega mörg hver því miður með í huga, á milli fatlaðra einstaklinga og annarra. Fatlað fólk er nákvæmlega eins og við hin, með sömu þarfir, langanir og væntingar. Við verðum að horfast í augu við það. Þessi lagasetning er mikilvægur þáttur í að undirstrika þann vilja þingsins.

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir umræðuna og hlakka til að sjá þetta frumvarp verða að lögum.