stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir nákvæma umfjöllun og framsögu um nefndarálit nefndarinnar. Eitt af því sem hún fór vel yfir var hvernig ætti að meta árangurinn af þeirri tilraun sem þarna er lagt til að verði farið í. Þess vegna vil ég spyrja hvernig eigi að meta hvort betra öryggi fæst með þessum breytingum og hvaða stofnanir koma að því. Hvaða samtal hefur átt sér stað af hálfu nefndarinnar við Landhelgisgæsluna eða aðra aðila sem sinna öryggi sjómanna?
Síðan langaði mig að spyrja um aflaheimildirnar. Nú liggur það fyrir að þær viðbótaraflaheimildir sem koma inn í kerfið við þessa tilraun fara allar inn á svæði A og í rauninni ríflega það ef miðað er við sama fjölda veiðileyfa og voru til staðar á síðasta ári. Þess vegna vil ég spyrja hvort nefndin hafi tekið það til skoðunar að deila aflaheimildunum út á svæðin og í rauninni festa ákveðinn hlut á hvert svæði þannig að það lægi fyrir fyrir fram hvernig þær skiptust.