stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mér fannst ég þó ekki fá svar við því hvort nefndin hefði rætt þann möguleika að binda aflaheimildir við svæðin. Mér finnst það í rauninni líklegt til þess að tryggja enn frekar öryggið ef það væri gert og kannski líklegt til þess að skapa sátt um þessa tilraun, því það liggur alveg fyrir í þeim umsögnum sem nefndinni hafa borist að það er ekki fullkomin sátt um að fara þessa leið. Þannig að ég vil ítreka þá spurningu hvort þetta hafi verið rætt ofan í kjölinn. Og eins vil ég hvetja nefndina til þess að eiga samtal við Landhelgisgæsluna um öryggisþáttinn.