stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þetta frumvarp sem er ætlað að auka öryggi strandveiða og alls ekki vanþörf á. En ég hef enn ýmsar athugasemdir við frumvarpið. Ég sé ýmsa annmarka á því og ætla í stuttu máli að fjalla um þá og spyrja um þá.
Í fyrsta lagi sýnist mér — hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir leiðréttir mig ef það er rangt — að miðað við áætlaðar veiðar strandveiðibáta á komandi sumri sé raunverulega verið að minnka veiðina á öllu svæðinu nema A-svæði. Miðað við töfluna í fylgiskjalinu er verið að minnka veiðarnar á B-svæðinu um 240 tonn, C-svæði 360 tonn og D-svæði 330 tonn. Aukningin kemur einungis á svæði A upp á 1.390 tonn ef ég hef reiknað rétt. Fyrir hvern er þetta frumvarp þá ef minnka á veiðar á öllum svæðum nema einu? Er bara verið að hygla svæði A? Ég bara spyr.
Það er nú bara þannig að þú kemst ekkert á sjó, t.d. með suðurströndinni, á Hornafirði, í Vestmannaeyjum eða í Grindavík, jafn oft og í fjörðum vestur á landi; fyrir opnu úthafi, sérstaklega fyrri part sumars. Það kostar miklu fleiri daga, miklu fleiri tilraunir og minni veiði á þeim svæðum en á svæði A. Aukningin kemur þarna alfarið á svæði A. Hv. þingmaður leiðréttir mig ef einhvers misskilnings gætir í þessu hjá mér.
Ég vil spyrja um annað: Ef kvótinn, eins og aðrir hv. þingmenn hafa komið inn á, klárast í júlí, segjum það, á þá hv. þingmaður von á því að ráðherra auki við hann þannig að hægt sé að veiða í ágúst?