stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann nánar út í það sem hann sagði hér, vegna þess að mér fannst það vera aðeins óljóst hvað hann var að fara. Hv. þingmaður sagði í ræðu sinni að ráðherra bæri pólitíska ábyrgð og það myndi þá draga úr líkum á því að veiðarnar yrðu stöðvaðar nema mikið lægi við. Mig langar að spyrja hann aðeins út í nánari skilgreiningu á því hvað átt sé við þegar sagt er að mikið liggi við, að ráðherra eigi að fá að stöðva veiðarnar. Ég skal taka dæmi. Segjum bara að þetta gangi fram með þeim hætti að um mánaðamótin júlí/ágúst verði allar aflaheimildir, þ.e. þau 11.200 tonn sem hér eru undir, uppurnar. Hvað á þá að gera að mati hv. þingmanns?
Í mínum huga er að sama skapi nokkuð óljóst hvað átt er við með lokunarheimild á ákveðnum svæðum. Það væri neyðarúrræði, eins og hv. þingmaður kallaði það. Hér væri afkoma fólks að veði og við ættum ekki að stunda veðmál með afkomu fólks. Ég get tekið undir það. En hver eru mörkin? Hvenær ætti ráðherra, að mati hv. þingmanns sem er með hugmyndir um breytingartillögur, að taka ákvörðun um að loka á öðrum svæðum til þess að leyfa svæði D að veiða það sem eftir stendur í heildarpottinum? Við hvaða magn ætti að miða?