stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Ég held að það sé alveg nokkuð skýrt, eða það vona ég alla vega, að hv. þingmaður og fyrrverandi ráðherra skilji hvaða pólitísk ábyrgð liggur í því að vera ráðherra. Fiskistofa getur t.d. ekki fært heimildir milli kerfa, hún hefur ekki heimildir til þess að færa úr línuívilnun yfir í strandveiðarnar til þess að auka í. Þannig að eina úrræðið sem Fiskistofa myndi hafa ef til þess kæmi sem hv. þingmaður tók dæmi um, að um mánaðamótin júlí/ágúst væri allt búið, hefði Fiskistofa ekki nein önnur úrræði en að stoppa. En ráðherra hefur alltaf fleiri úrræði. Ráðherra getur fært milli kerfa, getur byggt upp einhverjar aðrar lausnir og gæti jafnvel ákveðið að í ljósi talna frá Hagstofu eða öðrum væri hreinlega aukning umfram 5,3% í lagi. Ég veit ekki alveg hvernig það myndi virka lögfræðilega, en það er ljóst að ráðherra hefur töluverðar heimildir.
Varðandi lokunarúrræði á einstökum svæðum. Aftur veit ég ekki hvernig ég á skýra það betur að loka mætti tilteknum svæðum, ég kann ekki að útskýra það betur. En hvernig heimildinni yrði beitt, það er vissulega góð spurning. Ég samþykki algjörlega þá gagnrýni vegna þess að eins og ég sagði í ræðu minni er þetta alls ekki fullkomin tillaga. Þetta er jafnvel mjög ófullkomin tillaga. En þetta er það besta sem ég gat komið með miðað við þann hraða sem við vinnum þetta á. Þess vegna bið ég um að við förum aðeins hægar og vinnum þetta betur. Það er örugglega hægt að finna töluvert betri lausn en þetta. En hugmyndin um það hvernig þessu yrði breytt væri að það væri gert í samræmi við jafnræðisreglu og þá hagsmuni sem fyrir liggja, vegna þess að fólkið (Forseti hringir.) á öllum svæðunum ætti auðvitað að hafa jöfn tækifæri til þess að nýta þær auðlindir sem við erum að tala um.