stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Til 2. umr. er nú frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Hér hefur verið gagnleg og uppbyggileg umræða í dag. Þessi hluti laganna er oft kallaður strandveiðifrumvarpið eða strandveiðarnar. Þetta er að mínu áliti ánægjulegur áfangi sem við erum að ná þótt um hann séu skiptar skoðanir. Það á líklega helst við um þá sem lofum og lögum ráða í fiskveiðum á Íslandi, þau sterku öfl sem fyrst og fremst fénýta auðlindir þjóðarinnar fyrir málamyndagjald, ef gjald skyldi kalla. Þessir aðilar þegja þunnu hljóði þegar vel gengur, una glaðir við sitt þegar vel árar, en kveina hástöfum, gráta við öxl hvers þess sem heyra vill og fleiri, þegar gefur á bátinn í efnahagslífinu.
Sanngirni og réttlæti eru víðs fjarri eða sú hugsun að við þurfum öll með sanngjörnum hætti að takast á við rekstur þessa samfélags með eðlilegri hlutdeild og með tekjum af þessari sameiginlegu auðlind okkar til lands og sjávar.
Ekki þarf að fjölyrða um að Samfylkingin hefur talað fyrir miklu róttækari og sanngjarnari breytingum í lagaumhverfi því sem lýtur að stjórn fiskveiða og því munum við halda áfram. Það eru réttlætismál og það eru siðferðileg mál, og auk þess eru það þjóðfélagsleg efnahagsmál. Við leggjum til góðar leiðir til að brjótast út úr núverandi kerfi. Ég leyfi mér að minna á frumvarp hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur um útboð á viðbótarkvóta sem liggur fyrir þinginu, sem komið hefur til úthlutunar síðustu fiskveiðiár og verið færður kvótaréttarhöfum á silfurfati, eins og fyrri daginn, án nokkurs endurgjalds.
Í öllum bænum, hættum að tala um að ef einhverjar breytingar verði gerðar fari allt á vonarvöl, útgerð flosni upp, þjóðin steypist á hausinn, öll festa verði fyrir bí, bæjarútgerðir verði aftur veruleiki með hallarekstri og úti verði um Ísland, óstöðugleiki og upplausn. Spunameistararnir hrópa á torgum: Er það þetta sem þjóðin vill? Nei, þetta er ekki bjóðandi og ekki sæmandi upplýstu fólki.
Strandveiðar hafa reynst mikilvægur þáttur í því að koma til móts við sjónarmið þeirra sem telja þörf á breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu í þá veru að tryggja almenningi ríkari hlutdeild í veiðunum. Strandveiðarnar hafa hleypt lífi í sjávarbyggðir allt í kringum landið. Það er sérstakt fagnaðarefni. En þetta eitt og sér dugar ekki en er lítill, góður áfangi. Allar aðgerðir, smáar sem stærri, sem lúta að því að losa um það helsi sem þjóðin býr við varðandi nýtingu auðlindarinnar eru af hinu góða. Það eru brestir í samfélaginu vegna þessa kerfis sem fengið hefur að viðhaldast þrátt fyrir stöðuga viðleitni til upplýstrar umræðu og breytinga.
En breytingarnar munu koma, þær koma hægt og sígandi. Það væri sómi að því að þau öfl sem mestu ráða hefðu forystu um það, hefðu frumkvæði. Við munum fyrr en síðar eignast nýja stjórnarskrá, þjóðin kallar eftir því, og hún mun taka af allan vafa. Hin sterku öfl gefa ekkert eftir og þess er ekki að vænta, hagsmunirnir eru miklir, hinir fjárhagslegu hagsmunir eru miklir. Eitt af höfuðmarkmiðum þess frumvarps sem fyrir liggur nú er að auka öryggi sjómanna sem stunda strandveiðar og ekki er annað að sjá en að það markmið haldist inni.
Tekist er á um hvort réttlæti ríki milli veiðisvæða og tímabila í strandveiðum þegar horft er til fiskigengdar og hvort þetta geti haft neikvæðar afleiðingar fyrir einstök svæði. Til þessara þátta hefur verið horft og ástæða er til að árétta enn að þetta er tilraun sem endurskoðuð verður strax í haust. Hin ráðandi öfl í kerfinu sjá vissulega ofsjónum yfir þeim örfáu tonnum sem ráðstafað er til strandveiða. Þeim er vorkunn. Þau óttast að þetta nýja frumvarp leiði til aukningar á þessum veiðum. Það er allt eins líklegt, en það mun ekki ríða fiskstofnunum við strendur Íslands á slig.
Frú forseti. Ég fagna þessu frumvarpi, styð það eindregið og óska strandveiðisjómönnum og íbúum sjávarbyggða gleðilegs sumars og góðra veiða.