stjórn fiskveiða.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér frumvarp um stjórn fiskveiða, svokallað strandveiðifrumvarp. Hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir mælti fyrir nefndaráliti frá atvinnuveganefnd sem sá er hér stendur er á. Eins og ég sagði í andsvari áðan: Í fullkomnum heimi hefði ég ekki verið ánægður með þetta. Ég hefði viljað vinna frumvarpið betur og sníða agnúa af. En tíminn frá því að þetta kom fyrir nefndina og þangað til núna, og strandveiðar hefjast í næstu viku, er knappur. Þetta er sett til bráðabirgða í sumar, til endurskoðunar í haust sem varð til þess að ég tek þátt í þessu og er á þessu máli.
Það er líka það sem mikið hefur verið talað um, þ.e. þessi öryggisþáttur og fyrirsjáanleiki í því að hver útgerð, hver bátur, hefur tólf daga í mánuði, í fjóra mánuði. Það gerir að verkum að menn geta stjórnað róðrunum þannig að þeir séu ekki að fara í vondum veðrum. Eins dreifist aflinn þá meira yfir mánuðinn og meiri líkur eru á betra verði á mörkuðum. Framboðið dreifist meira yfir mánuðinn. Menn hafa þarna eina sex daga til að, hvað á maður að segja, varíera innan mánaðarins. Það eru tólf dagar til veiða, það eru tólf dagar í helgarfrí og þá eru sex til sjö dagar eftir af mánuðinum, eftir því hvort 30 dagar eða 31 dagur er í mánuðinum, til þess að varíera þessum — afsakið að ég tala ekki íslensku — (Gripið fram í: Hafa upp á að hlaupa.) til þess að hafa upp á að hlaupa, takk fyrir hv. þingmaður, að fara í þessa róðra.
Aðaláhyggjuefni málsins er að allir hafi trygga þessa tólf daga í mánuði í fjóra mánuði. Það hefur komið fram í ræðum í dag, og eins í vinnu nefndarinnar, að miklu meiri líkur en minni eru á því að þetta dugi vegna þess að það sem er til ráðstöfunar er meira en áður hefur aflast í strandveiðikerfinu. Eins og kemur fram í nefndarálitinu er ráðherrann með úrslitavaldið í því hvort grípa þarf inn í. Þar af leiðandi er sveigjanleikinn meiri en ef Fiskistofa væri með það mál. Ég ætla ekkert að fara mikið ofan í saumana á þessu. Það er búið að fara ansi vel í gegnum þetta og við eigum eftir að taka þetta aftur fyrir í nefndinni og ræða aðeins betur. Svona í stórum dráttum þá er ég alveg inni á þessu.
Svo er það líka að ufsinn er tekinn út fyrir sviga. Honum er landað sér og hann er ekki inni í þessum potti og peningurinn fyrir hann deilist til helminga til útgerðar og til hins opinbera. Þá vaknaði sú spurning, og ég kom því til skila, að óvíst væri hvernig veiðigjöld væru þá tekin af ufsanum, hver greiddi þau veiðigjöld. Ég veit að verið er að vinna í því, formaður nefndarinnar er að láta vinna í því máli. Vonandi berst svar, helst á morgun, um það hver ber þungann af að borga þau veiðigjöld sem þá eru af þessum ufsa. Það skiptir miklu máli vegna þess að það er mjög lágt verð á ufsanum. Það eru kannski 50–70 kr. nú um stundir og þá eru það einhverjar 30 kr. til útgerðar og það munar um hverja krónu ef veiðigjaldið er tekið af því.
Það spilar kannski líka inn í með þessari breytingu að það jafnast hluturinn á milli þeirra sem eru á hæggengum, minni bátum og þeirra sem eru á stærri trillunum, sem sagt hraðbátunum. Litlu bátarnir hafa oft á tíðum átt undir högg að sækja í sókninni eins og kom hér fram í ræðum áðan. Þeir ættu þá að vera með jafnari hlut. Það er nú þannig, ég hef sagt það áður í ræðum, að ég var ekkert mjög hrifinn af þessu strandveiðikerfi á sínum tíma. Mér fannst bara að menn ættu að vera með eitt kerfi og hef sjálfur talað fyrir því. Mér finnst kvótakerfið hið besta kerfi og sjálfur hef ég unnið eftir því í mörg ár. Ef það fengi þá jákvæðu umræðu sem það þyrfti til að það lifði góðu lífi hefði ég engar áhyggjur af því. En það er nú bara þannig í þjóðfélaginu að ekki er sátt um það. Ræðumaður sem var hér á undan mér talaði alveg hreint út um það að það væri alls ekki sátt um það kerfi. En strandveiðikerfið er að fara núna inn í tíunda sumarið.
Það hefur sannað sig. Það hefur sýnt sig að þetta er ágætiskerfi. Þetta er kerfi til að hjálpa ungum mönnum til að byrja í útgerð og þetta er fyrir þá sem vilja hafa eitthvað að gera, borga kostnað og hafa laun af því, þetta er gott kerfi. Þetta er líka gott kerfi fyrir þá sem eru að hætta til sjós en vilja samt hafa eitthvað að gera. Þetta hentar því ansi mörgum og svo er þetta líka kerfi sem virkar vel fyrir hinar dreifðu byggðir. Hráefnið er orðið mjög gott, fyrstu árin var brotalöm á því en það hefur lagast mikið og er í raun orðið hið besta mál og gæti örugglega lagast enn meira því eftirlit mætti vera betra. Ég hef oft talað um að fiskmarkaðir mættu verðlauna menn og jafnvel öfugt miðað við hvernig hráefni þeir eru að koma með, hve fiskurinn er vel kældur, hvernig hefur verið gengið frá honum í körin og annað slíkt. Hráefnið skiptir rosalega miklu máli og það er orðin mikil krafa um það, hjá þeim sem kaupa fisk, að hráefnið sé gott. Flestir þeirra sem eru í útgerð og eru með eigin fiskvinnslu eru komnir með mikinn og góðan búnað um borð í sína báta sem gefur enn betra hráefni og kvarta svolítið yfir því að markaðirnir séu ekki nógu grimmir í að fylgja því eftir á sínum stöðum. Ég hvet markaði til að bæta þar úr, það er alveg þess virði að vinna að því.
Ég er sjálfur með frumvarp í gangi sem ég veit ekki hvort kemst á dagskrá á þessu vorþingi. Það er líka í sambandi við strandveiðar og ég hefði alveg viljað sjá það í þessu frumvarpi, það hefði alveg passað þar. Það fjallar um það að í núverandi kerfi er það þannig að þegar bátur er skráður á strandveiðar getur hann ekki farið á annan veiðiskap það fiskveiðiárið. Hann er bara skráður á strandveiðar út sumarið og punktur og basta. Í frumvarpinu sem ég lagði fram getur bátur skráð sig úr strandveiðikerfinu og farið í aðrar sértækar veiðar, svo sem eins og grásleppu og/eða makríl eða einhverjar sérveiðar. Eins væri þá hægt, þegar veiði lýkur í ágúst, að fara strax í annan veiðiskap. Á innanverðum Breiðafirði byrja grásleppuveiðar ekki fyrr en eftir 20. maí. Oft hafa menn talað um að þeir hefðu þá viljað vera á strandveiðum fram að þeim tíma og fara svo á grásleppu en það er ekki hægt af því að það er ekki í lögum, það þarf lagabreytingu til. Eins þeir sem hafa klárað strandveiðar eða hafa ekki klárað, vilja kannski fara á makríl í júlí og ágúst, þeir hafa ekki getað það vegna þess að lögin bjóða ekki upp á það. Vonandi kemst þetta frumvarp á dagskrá og fær góðar móttökur.
Eins og ég kom inn á áðan hafa strandveiðarnar sannað sig. Þær eru mjög atvinnuskapandi vítt og breitt um landið. Af því að hér var minnst á brothættar byggðir þá hefur þetta hjálpað til í mörgum byggðarlögum sem hafa átt undir högg að sækja. Mig langar að minnast á að fleiri útgerðir eiga undir högg að sækja. Ég hef verið í sambandi við aðila sem eru í útgerð og fiskvinnslu. Á mörgum stöðum er mjög erfitt hjá litlum og meðalstórum útgerðum og þeim sem eru með fiskvinnslu í þeim stærðarflokki. Það skapast náttúrlega af háum veiðigjöldum á yfirstandandi fiskveiðiári, það skapast af háum launakostnaði og launatengdum gjöldum. Það er líka út af lágu fiskverði og því að krónan er sterk og þá er útflutningsverðmætið minna. Margir útgerðaraðilar á Snæfellsnesi, á Vestfjörðum og á Ströndum — þetta eru þeir staðir sem ég hef verið í sambandi við — og eins á Suðurnesjum og Reykjanesi eru ansi þungir á brúnina yfir því hve lítill skilningur virðist vera hér á Alþingi yfir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í útgerð vítt og breitt um landið. Þá er ég að tala um þessar útgerðir sem flokkast undir litlar og meðalstórar. Hyggst ég ásamt fleiri þingmönnum vinna í því máli að fá aðila á fundi, helst með ráðherrum, til að fara vel yfir þessi mál. Og þessi umræða hér á þinginu mætti vera miklu meiri.
Það er allt of mikið talað um að veiðigjöld séu of lág og slíkt og útgerðin töluð niður. Á flestum þeim stöðum sem ég þekki til, á öllum þeim stöðum sem ég þekki til, eru menn í þessu meira og minna til að halda uppi atvinnu og líka náttúrlega til að komast af og oft hefur það nú gengið vel. En það hefur verið mjög erfitt núna og unga fólkið í fjölskyldum sem eru í útgerð vill oft á tíðum ekki taka við vegna þess að það sér hve baslið er mikið og vill bara fara að gera eitthvað annað. Það er ekki gott veganesti fyrir ungt fólk að vilja ekki taka við því sem foreldrarnir hafa byggt upp og væri kannski eðlilegt að yngra fólkið tæki við. Þetta er staðreynd og er mjög alvarlegt mál. Mér finnst að við hér á hinu háa Alþingi þurfum að taka þetta mál mjög alvarlega.
Svo er annað sem mig langar að koma inn á af því ég er farinn að tala um útgerð almennt og um byggðafestu, það er atriði sem hefur stundum borið á góma en er lítið talað um líka, þ.e. forkaupsréttur sveitarfélaga á aflaheimildum. Í dag er þessi forkaupsréttur til en hann er í skötulíki, hann er eingöngu á bát, hann er ekki á aflaheimildir. Það er líka þannig að ef lögunum væri breytt í það að þetta væri sett á aflaheimildir hefðu fá sveitarfélög efni á því að hafa þennan forkaupsrétt. Árið 2016, í tíð þáv. hæstv. sjávarútvegsráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, var farið af stað með vinnu í Byggðastofnun við að skoða þetta mál, að Byggðastofnun gæti unnið með bönkum eða lánastofnunum og sveitarfélögum í því að sveitarfélögin gætu nýtt þennan forkaupsrétt þannig að kvótinn yrði síður seldur úr byggðarlaginu. Þetta er í mínum huga mjög brýnt mál til þess að — sem allt of oft hefur skeð — að byggðarlög bíði ekki mikið tjón af því að kvóti hefur verið seldur burtu. Fólk hefur misst vinnuna og þurft fara eitthvað annað, fasteignaverð hefur hrunið og atvinna orðið ótrygg. Þetta hefur líka gert að verkum að kvótakerfið fær enn þá meiri gagnrýni. Það er nú svo að mest af aflaheimildum hér á Íslandi er á fárra höndum og nýjustu fréttir eru þær að þeim er enn að fækka. Það eru ekki góðar fréttir. En ég ætla ekkert að fara út í þá sálma hér.
Við ræðum strandveiðifrumvarp og ég er sammála þessari breytingu. Þetta er skref í þá átt að festa þetta kerfi í sessi þó að ekki sé allt fyrirsjáanlegt í því. En það verður þá tekið til endurskoðunar í haust, fái þetta að komst í gegnum þingið. Að lokum vil ég bara segja: Strandveiðikerfið þarf að fá að vera til áfram. Við þurfum að passa okkur á því, sem allt of oft skeði hér fyrir nokkrum árum, að þessi skakkerfi, þessi dagakerfi, endi ekki inni í kvóta. Við þurfum að passa upp á að strandveiðikerfið fái að halda sínum sessi, sé innan sviga og sé bæði landi og þjóð til gagns og sóma.