148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

stjórn fiskveiða.

429. mál
[18:50]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þetta. Ég var hér á þingi sem varaþingmaður þegar þetta kom til umræðu með rækju- og skelbæturnar. Það var samhliða umræðunni um að koma til aðstoðar við brothættar byggðir. Þá þurfti að ná í einhvern kvóta til þess að leita eftir því að fá aflaheimildir til þess. Þá var farið að ræða þessi mál og menn hrukku mikið við í minni heimabyggð og farið var af stað til þess að gera grein fyrir því.

Það er þannig í dag að það þarf að sækja þetta á hverju ári, til að þetta haldi; þetta er mjög ótryggt, þetta er alltaf frá ári til árs og er mikið áhyggjuefni. Ég get alveg tekið undir það með þingmanninum að allar svona breytur hafa áhrif og allt þar fram eftir götunum. Ég virði skoðanir þingmannsins og þakka fyrir svarið.