148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

stjórn fiskveiða.

429. mál
[18:51]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka þeim sem tóku þátt í þessari umræðu fyrir góðar og málefnalegar umræður. Mörg sjónarmið hafa komið fram enda er þetta mál sem eðlilegt er að menn hafi skoðanir á. Mér finnst mjög gott að menn eru lausnarmiðaðir í þessari umræðu og jákvæðir gagnvart strandveiðum yfir höfuð, að þær hafi verið sjávarbyggðunum til framdráttar og styrkt byggðirnar frá því þær voru settar á. Það skiptir auðvitað máli upp á framtíð strandveiða.

Það hefur verið talað um að lítið megi hreyfa við neinu svo að það raski ekki öðru og vissulega er þessi hlutur innan stóra aflamarkskerfisins, 5,3%, ekki stór. Þar eru hlutir sem eru viðkvæmir gagnvart mörgum byggðum eins og byggðakvóti og línuívilnun og, eins og nefnt var hér áðan, skel- og rækjubætur. Og svo eru strandveiðarnar. Fiskimiðin á Íslandi eru gjöful og sem betur fer hefur aflinn á milli ára verið að aukast í heild. Það voru ein 255 þús. tonn fyrir síðasta fiskveiðiár og bættust við 10 þús. tonn sem voru færð á milli fiskveiðiára sem nýttust ekki þar á undan. Auðvitað nýtur þetta kerfi, 5,3%, góðs af því þegar heildarafli á Íslandsmiðum er aukinn.

Það kerfi sem er í dag er langt frá því að vera gallalaust og auðvitað klæjar mig í lófana að halda hér almennilega ræðu um galla kvótakerfisins. En ég ætla að halda aftur af mér með það af því við erum að fjalla um afmarkað mál, strandveiðar, og höfum náð að vinna mjög þétt saman, sá hópur sem er í atvinnuveganefnd, að því máli og fundið fyrir velvilja þingsins, þó að vissulega séu áhyggjur af því að það magn sem verður til skiptanna dugi ekki fyrir allt tímabilið. Ég, eins og ég nefndi áðan, deili ekki þeim áhyggjum. Við höfum upp á að hlaupa það mikið magn, miðað við þá útreikninga sem hafa verið lagðir fram þessu til stuðnings. Ég tek undir þau orð að sem betur fer er atvinnuástand mjög gott í þjóðfélaginu núna. Það er kannski ekki mikill hvati til þess að fara að fjárfesta í bát með öllu tilheyrandi til þess að gera út á strandveiðar og því miður hefur strandveiðibátum verið að fækka. Það hefur ekki verið nógu góð afkoma.

Sá hópur sem gerir út á strandveiðar er að mörgu leyti ólíkur innbyrðis. Mér finnst það gott þegar kvótalitlir bátar hafa möguleika á að skapa sér heilsársafkomu með því að vera á strandveiðum á sumrin. Mér finnst það mjög gott. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason nefndi erfiðleika margra lítilla og meðalstórra útgerðarfyrirtækja og ég get tekið heils hugar undir þær áhyggjur. Aflamarkskerfið verður að gera ráð fyrir fjölbreytileika og að aflaheimildir safnist ekki á örfáar hendur stórútgerðar í landinu. Markaðir erlendis kalla eftir hráefni af dagróðrarbátum, góðu hráefni, á línu og krók, og öðrum þeim veiðiskap sem er stundaður af þessum litlu og meðalstóru útgerðum. Allt þarf þetta að vera í bland til þess að hafa þennan fjölbreytileika.

Ég hef meiri áhyggjur af því að þeim ungu mönnum — af því að það eru nú aðallega ungir menn sem sækja sjó og stunda róðra — fækki sem hafa áhuga á því yfir höfuð að fara í útgerð og máta sig í þann geira. Kannski stöndum við frammi fyrir því að gera eins og danska þingið, það sammæltust allir þar um að gera allt sem hægt væri til að efla veiðar við strendur Danmerkur. Það var vegna þess að kvótinn var að hverfa úr strandbyggðunum á fárra hendur. Þegar danskir þingmenn sáu það, hvar í flokki sem þeir voru, að þessi grein væri að hverfa úr landslagi þeirra, atvinnulífi og menningu, sammæltust þeir um að flytja mál í þinginu sem ýtti undir að menn hefðu hvata til að stunda róðra frá þeim sjávarbyggðum í Danmörku þar sem hefðin hafði verið til staðar í gegnum tíðina. Ég lít líka á strandveiðar sem hluta af okkar sjávartengdu menningu, ekki neinn hobbýbúskap, heldur alvörugrein sem styður annað atvinnulíf úti á landi; grein sem eigi að hafa virðingu og sess í umræðunni, þ.e. að við viljum efla strandveiðar og styrkja með annarri lítilli og meðalstórri útgerð til jafns við stórútgerð í landinu sem vissulega hefur bætt þjóðarhag og á fullan rétt á sér. En það þurfa allir að lifa, það er bara þannig innan útgerðargeirans eins og annars staðar í avinnulífinu.

Við viljum gera þessa tilraun í sumar og ég held að farið hafi verið mjög vel yfir það hvers vegna það er, til að auka öryggi, sveigjanleika og möguleika á nýliðun. Landsvæðin eru ólík og ég tel mikilvægt að í haust skoðum við þann möguleika að byrja fyrr á þeim svæðum þar sem fiskgengd er fyrr á vorin og hafa þann sveigjanleika í kerfinu. En ef þessi tilraun er ekki gerð þá verðum við enn þá stödd þar að segja „ef“ og „ekki“ og „kannski“, og til að fá svar við þessu öllu þurfum við, með því að vera búin að undirbyggja þetta mál það vel, að leggja upp með stórauknar heimildir. Ég er ekki alveg búin að sjá 2.500 tonn bætast við, eins og hv. þm. Jón Gunnarsson nefndi hér áðan, en það veit á gott ef það verður. En það er minnsta kosti öruggt að við fáum þessi 11.200 tonn og þau verða verðmætari þar sem ufsinn er ekki þar inni og síðan kemur í ljós hvernig þetta lítur út þegar líður á sumarið, varðandi ónýttar heimildir sem annars mundu brenna inni. Ef þörf verður á er hægt að grípa til ráðstafana til að mæta því.

Ég þakka þessar góðu umræður. Við munum taka málið inn milli 2. og 3. umr., vegna nokkurra þátta sem hafa verið nefndir hér í dag, og ég reikna með að fundur verði í atvinnuveganefnd fyrir hádegi, milli 11 og 12, á morgun. Við munum fara yfir það svo að við getum klárað þetta mál seinni partinn á morgun í atkvæðagreiðslu. Það er brýnt að koma því áfram svo að hægt sé að opna á að aðilar geti sótt um strandveiðileyfi og menn geti komist á strandveiðar strax eftir 1. maí.